Sindra fréttir
5. og 6. flokkur kvenna

Safnkortshafar Esso hafa styrkt Sindra myndarlega!

Safnkortshafar Esso stóðu vel við bakið á yngra flokka starfi hjá Knd. Sindra á árinu 2005. Á árinu 2004 gerðu Olíufélagið Esso og Knd. Sindra með sér samstarfssamning þar sem eldsneytiskaup Safnkortshafa Esso á póstnúmeri 780 og 781 réði því hve mikinn styrk Sindri fékk til reksturs yngri flokka félagsins. Samningsaðilar settu sér háleit markið í upphafi sem komið hefur í ljós að voru síður en svo fjarstæðukennd. Eldsneytiskaup Safnkortshafa Esso jukust um 25,6% milli áranna 2003 og 2004 og um 18,8% milli áranna 2004 og 2005. Um leið og Knd. Sindra þakkar Safnkortshöfum Esso á Höfn og nágrenni fyrir frábært framlag til uppbygginar á yngri flokkastarfi félagsins hvetjum við alla til að halda áfram að styðja við bakið á félaginu með því að versla alltaf eldsneyti á þjónustustöðvum Esso hvort sem það er á Hornafirði eða á öðrum stöðvum félagsins þegar ferðast er um landið.

Umsóknir og upplýsingar um Safnkort Esso liggja fyrir á öllum þjónustustöðvum Esso og einnig á skrifstofu Sindra við Hafnarbraut á Höfn.

Að lokum vill Knd. Sindra minna á að því betur sem við getum staðið að góðri umgjörð í rekstri barna- og unglingastarfs félagsins því meiri árangri náum við í forvörnum. Til þess þurfum við fjármagn og viljum við sérstaklega þakka Safnkortshöfum Esso fyrir þennan frábæra stuðning sem þeir hafa sýnt okkur í því að hlúa að því dýrmætasta sem við eigum.

Stjórn knd. Sindra


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica