Íslandsmeistarar í Blaki
Um síðustu helgi fóru 19 galvaskir blakarar úr blakdeild Sindra á Akureyri ásamt þjálfurum og nokkrum foreldrum. Krakkarnir tóku þar þátt í seinni hluta Íslandsmótsins í krakkablaki og höfðu flest þeirra áður keppt á fyrrihluta mótsins sem haldinn var í Mosfellsbæ í haust. Mótið á Akureyri var það stærsta sem haldið hefur verið til þessa, en 67 lið voru skráð til leiks. Sindri sendi 4 lið, þrjú kepptu í 5. flokki d. liða og eitt 3. flokka lið keppti sem gestalið í 4. flokki. Vel var tekið á móti liðunum á Akureyri og var öll umgjörð mótsins til mikillar fyrirmyndar. Krakkarnir í Sindra stóðu sig frábærlega, spiluðu vel og komu íþróttamannslega fram í alla staði að hætti sannra Sindramanna. Á þessu móti eignaðist Sindri sína fyrstu íslandsmeistara í krakkablaki og hin liðin tvö voru í fjórða og fimmta sæti í átta liða riðli. Þetta er frábær árangur hjá liðum sem eru að taka þátt í sínu fyrsta Íslandsmóti.Til hamingju krakkar! Eldri krakkarnir kepptu sem gestalið við sér aðeins yngri krakka og unnu fimm leiki og töpuðu einum.
Vel var haldið utan um hópinn í ferðinni og var þátttaka foreldra bæði í undirbúningi ferðarinnar og á mótinu sjálfu ómetanlegur. Fá þeir bestu þakkir fyrir að gera þessa ferð mögulega.
Til hamingju blakarar.
Úrslit mótsins (pdf)


