Sindri ræður framkvæmdarstjóra
Ungmennafélagið Sindri hefur ráðið Valdemar Einarsson sem framkvæmdarstjóra í fullt starf frá og með 15. maí. Valdemar er öllum hnútum kunnur innan Sindra eftir margra ára starf sem formaður knattspyrnudeildar og síðar gjaldkeri aðalstjórnar.
Ráðning framkvæmdarstjórans hefur lengið verið í umræðunni og er nú loksins orðin að veruleika. Markmiðið með ráðningunni er að gera allt starf innan Ungmennafélagsins Sindra skilvirkara. Það er von aðalstjórnar að framkvæmdastjórinn komi til með að styrkja starf allra deilda innan Sindra.
Mikið starf fer fram innan Sindra um þessar mundir og það er mjög mikilvægt fyrir íþróttafólk og stjórnarfólk sem starfar innan Sindra að fá þennan starfsmann til þess að létta sér starfið. Mikið álag er oft á iðkendunum, aðstandendum þeirra og stjórnarfólki í kringum starfið. Framkvæmdastjóri sem ráðinn er á heilsársgrundvelli kemur til með létta verulega undir með þessu fólki hvað allt skipulag varðar.
Stjórnin


