Leikurinn endaði 3-1 Sindramönnum í vil
Talsverður strekkingur var á Sindravöllum í gær þegar Sindri tók á móti Hetti frá Egilsstöðum. Leikurinn byrjaði nokkuð fjörlega og eftir um tíu mínútna leik komust Sindramenn yfir. Afmælisbarnið Óskar Guðjón Óskarsson fékk þá stungusendingu upp í hægra hornið, lagði boltann fyrir þar sem Björn Pálsson var réttur maður á réttum stað og setti boltann örugglega í netið. Eftir markið dró verulega úr skemmtanagildi leiksins og var miðjuhnoðið í fyrirrúmi. Fátt markvert gerðist það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og staðan því 1-0 í hálfleik. Strax í upphafi þess síðari dró hins vegar til tíðinda þegar Sindramenn fengu vítaspyrnu. Björn Pálsson var felldur inn í teig Hattarmanna eftir laglegt spil heimamanna og fór Jón Haukur Haraldsson á punktinn. Hann skoraði úr spyrnunni og heimamenn komnir í vænlega 2-0 stöðu. Eftir markið drógu Sindramenn sig nokkuð til baka á meðan Höttur hélt boltanum ívið meira.
Þegar um tuttugu mínútur voru liðnar af seinni hálfleik náði Höttur að laga stöðuna. Var þar að verki félagaskiptakóngurinn Hallur Ásgeirsson eftir að hafa fengið boltann við vítateigslínuna eftir klafs í teig Sindramanna. Eftir markið héldu Hattarmenn áfram að halda boltanum en áttu í erfiðleikum með að skapa sér færi. Eftir að hafa fækkað talsvert í vörn sinni kom að því að hún brast þegar Sindramenn áttu stungusendingu inn fyrir framliggjandi vörn Hattarmanna. Halldór Steinar Kristjánsson fékk háan boltan rétt fyrir framan miðjuna og fékk markvörð Hattar á móti sér. Halldór gerði engin mistök og vippaði boltanum laglega yfir markvörðinn í stöng og inn. Sindramenn komnir í 3-1 og aðeins um korter eftir.
Sama sagan hélt áfram eftir þriðja mark Sindramanna. Hattarmenn héldu boltanum en Sindramenn héldu sig til baka og áttu oft skeinuhættar sóknir gegn fáliðaðri vörn Hattar. Talsverður hasar var í leiknum á síðustur mínútunum og boltinn gekk endanna á milli. Hattarmenn vildu ótt og títt fá vítaspyrnu en ágætur dómari leiksins var ekki á sömu skoðun og endaði því leikurinn 3-1 Sindramönnum í vil.
Næsti leikur Sindra er mánudaginn 5. júní á móti ÍR. Leikurinn verður á Sindravöllum kl. 14:00. Sindramenn vilja einnig þakka þeim fjölmörgu áhorfendum sem mættu á völlinn þrátt fyrir strekkinginn!


