Sindramenn mættu Völsungi á Húsavík
Blíðskapaðarveðrið sem verið hefur á Norðurlandi í sumar lét með sanni sjá sig í leik Völsungs og Sindramanna í 2. deild karla á Húsavík á laugardaginn. Leikurinn var mjög jafn framan af og færin létu á sér standa. Fyrsta markið kom eftir um hálftíma leik þegar Guðmundur Óli Steingrímsson kom Völsungum yfir sem var í raun gegn gangi leiksins. Eftir ágætt spil þeirra komst Guðmundur hægra megin inn í vítateig Sindramanna gegn Matjaz Kastelic í markinu og lagði hann í fjærhornið. Ekki nema fimm mínútum síðar komust Völsungar í 2-0 þegar slöpp fyrirgjöf, sem virtist hættulaus, barst á fjærstöngina en þar var Einar Guðnason á tánum og skoraði framhjá Matjazi í markinu. Völsungar heldur betur búnir að refsa Sindramönnum fyrir andartaks sofandahátt. Sindramenn náðu hins vegar að laga stöðuna fyrir hlé. Þeir fengu þá hornspyrnu hægra megin og eftir mikinn barning í teig Völsungs kom Sindri Ragnarsson boltanum yfir línuna með marki sem verður seint talið með fallegri mörkum tímabilsins. Mark var þetta engu að síður og gaf það Sindramönnum von um betri árangur í seinni hálfleik.
Eftir hlé drógu Völsungar sig mjög til baka og freistuðu þess að verja forskot sitt. Sindramenn héldu boltanum mun meira en gekk lítið að skapa sér færi gegn fjölmennri vörn Húsvíkinga. Næst komust þeir því að Atli Arnarson fékk ágætis færi en markvörður Völsunga varði vel. Lokatölur því 2-1 fyrir heimamenn.
Næsti leikur Sindramanna verður laugardaginn 22. júlí gegn Reyni og verður leikurinn í Sandgerði. Næsti heimaleikur er svo laugardaginn 29. júlí þegar Seyðfirðingar koma í heimsókn.


