Sindra fréttir
Uppskeruhátíð yngriflokka Sindra 2006
Mynd 1 af 2
1 2

Knattspyrnuvertíðinni lokið – lokahóf yngri flokkanna

Sunnudaginn 10. september hélt knattspyrnudeild Sindra lokahóf fyrir yngri flokkana sína. Það var haldið á Sindravöllum í blíðskaparveðri. Fjölmenni var mætt við upphaf uppskeruhátíðarinnar og var gaman að sjá hversu margir foreldrar voru mættir með börnum sínum til þess að gera sér glaðan dag. Eldri hóparnir skiptu í blönduð lið stráka og stelpna og spiluðu fótbolta af miklum eldmóð. Yngri flokkunum spiluðu fótbolta við foreldra sína og sýndu margir foreldrar glæsileg tilþrif á vellinum án þess þó að eiga roð í yngri kynslóðina. Krakkarnir fóru líka í vítaspyrnukeppni, knattspyrnuþrautir og í leiki með foreldrum undir handleiðslu Halldórs Steinars Kristjánssonar, íþróttakennara.

Í lokin fengu svo allir gómsæta skúffuköku frá Jóni Bakara og gerði fólk henni mjög góð skil. Allir iðkendur Sindra fengu svo verðlaunapening, sem ESSO styrkir knattspyrnudeildina með, í viðurkenningarskyni fyrir þátttökuna í sumar. Einnig fékk 4. flokkur kvenna glæsilegan verðlaunabikar frá safnkortshöfum ESSO í tilefni af því að þær hömpuðu Íslandsmeistaratitli í sumar.
Stjórn knattspyrnudeildar Sindra vill þakka öllum þeim sem lögðu leið sína á Sindravelli síðastliðinn sunnudag, bæði iðkendum og foreldrum þeirra. Við viljum þakka ykkur fyrir þátttökuna í þessari skemmtilegu uppskeruhátíð.

Sjá myndasafn


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica