Sindra fréttir
Sindri karfa

Flott stemning í íþróttahúsinu

Sindri mætti toppliði UMFH síðastliðin föstudag í öðrum leiki sínum í 2. deildinni. Gestirnir sem komu frá Flúðum byrjuðu af krafti og komust í 7-0 og 9-2 leist áhorfendum ekkert á þessa byrjun. En þá hrukkum okkar menn í gang og með góðum stuðningi af pöllunum og trumbuslætti náðu Sindri að jafna og staðan eftir fyrsta leikhluta 22-22. Miklu minna var skorað í næsta leikhluta og varnarleikur beggja liða varð öflugri en staðan í hálfleik 35-32 heimamönnum í vil. Þriðji leikhluti var svo eign Sindramanna sem spiluðu gríðarlega góða vörn og lögðu grunn af fínum sigri, en staðan fyrir fjórða leikhluta var 61 ? 49. Í fjórði hlutanum reyndu gestirnir allt hvað þeir gátu til að jafna, en þeir hafa nokkuð góðar skyttur innan síns liðs.

En strákarnir okkar héldu haus og unnu frábæran sigur 80 -71. Spilar liðið mjög góðan varnarleik sem einkennist af mikilli baráttu og vilja. Til marks um það þá hefur lið UMFH skorað í hinum þremur leikjum sínum rúm 96 stig að meðaltali!
Stigahæstir í þessum leik voru Skúli 19, Hörður 16, Jakob 12 og Vésteinn með 11 sig

Næsti leikur er í kvöld kl. 20.00 en þá kemur lið Drangs frá Vík í Mýrdal og vonandi mæta jafnmargir áhorfendur og síðast og hvetja okkar drengi.


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica