Sindra fréttir
Fernusöfnun Sindra

Sent til Svíþjóðar til endurvinnslu

Fernusöfnun Sindra hefur nú staðið yfir um nokkurt skeið og tekist mjög vel. Nú er komið svo mikið af fernum og pappa að það fer að verða komið nægilegt magn til að fara að senda það frá Höfn. Margir hafa velt því fyrir sér hvað verði um pappann sem sendur er frá Höfn, en að sögn Valdemars Einarssonar framkvæmdarstjóra Sindra þá er pappinn fluttur héðan til Reykjavíkur þar sem að hann er settur í gám ásamt pappanum sem safnast hjá Sorpu og er síðan sendur til Svíþjóðar til endurvinnslu. Pappír og pappa má endurvinna allt að 7 sinnum. Þessi flokkur af pappa er mjög verðmætur og fær Sindri greitt 35 krónur fyrir hvert kíló sem safnast hér í sveitarfélaginu. Úr pappanum er búin til kartonpappír sem notaður er aftur í umbúðir og m.a. til prentunar. Talið er að árlega falli til 55 tonn af þessari vöru bara hér í Sveitarfélaginu Hornafirði.

Að sögn Valdemars þá telur hann raunhæft að með sameiginlegu átaki íbúanna náist að safna saman 60% af þessu magni, en það eru 33 tonn. Takist það þá fær Sindri greitt fyrir það magn um 1,1 milljón krónur.


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica