Sindri spilaði fótboltaleik annan hvern dag á síðasta ári
Aðalfundur knattspyrnudeildar Sindra verður haldinn í dag, fimmtudaginn 29. mars kl. 19:30 í Nýheimum. Þar verða hefðbundin aðalfundarstörf á dagskránni. Til umræðu verður skýrsla stjórnar, reikningar deildarinnar og kosið verður í stjórn deildarinnar. Það er ljóst þegar skýrsla stjórnar er lesin að starf deildarinnar er umfangsmikið. Til gamans má geta að lið á vegum knattspyrnudeildar Sindra taka þátt í knattspyrnuleikjum oftar en annan hvern dag á ársgrundvelli. Ef tímabilið maí til september er skoðað kemur í ljós að deildin tekur þátt í meira en einum leik á dag. Þetta er mikil vinna fyrir knattspyrnudeild eins og Sindra. Deildin sem rekin hefur verið með hagnaði undanfarin ár er rekin með halla í ár. Það er alvarlegt mál enda þekkir knattspyrnudeild Sindra það vel að illa getur farið ef hallareksturinn verður viðvarandi. Það er eitthvað sem við verðum að reyna að koma í veg fyrir.
Á fundinum í dag verður lögð fram tillaga um nýtt stjórnarfyrirkomulag hjá knattspyrnudeild Sindra. Tillagan felur það í sér að skipa annars vegar yngri flokka ráð og meistaraflokkaráð hins vegar. Jóhanna Stígsdóttir gengur úr stjórn knattspyrnudeildarinnar og eru henni þakkað áralangt og farsælt starf fyrir deildina.
Stjórn knattspyrnudeildar Sindra


