Gamlárshlaup Sindra og KHB
Frjálsíþróttadeild Sindra og KHB standa fyrir Gamlárshlaupi á Gamlársdag eins og í fyrra . Hlaupið verður ræst frá Sundlaug Hafnar. Hlaupnir verða 2,5 km, 5 km og 10 km, en nú verður tekið upp sú nýbreytni að fyrst verður ræst 10 km klukkan 12.00, 5 km. 12.15 og klukkan 12.30 verður ræst í 2,5 km hlaupið. Þetta er alveg tilvalin tími til að hefja áramótaheitið um meiri hreyfingu. Að sögn Valdemars Einarssonar framkvæmdarstjóra Sindra þá hvetur hann alla sem geta til að mæta og taka þátt í hlaupinu og sé það góð byrjun á áramótaheiti um heilbrigt líferni og koma sér í gott form. Eins segir Valdemar að gaman væri að bæta aðsóknina frá því í fyrra en þá mættu rúmlega 40 manns.
Fjölskyldudagur Sindra verður haldin í Íþróttahúsinu sunnudaginn 30 desember frá 14.00 til 18.00
Ný leiktæki frá Hopp verða á staðnum og auðvitað verður heitt kaffi á könnunni. Aðgangseyrir er kr. 1000 og er frítt fyrir þriðja barn.


