Sindra fréttir
3. flokkur karla Íslandsmeistarar

Aðalfundur knattspyrnudeildar Sindra

Rekstarfélag meistaraflokka deildarinnar

Aðalfundur knd. Sindra verður haldinn í kvöld, fimmtudaginn 6. mars kl. 20:00 í Nýheimum. Á fundinum verða tekin fyrir hefðbundin aðalfundarstörf og síðasta starfsár gert upp. Síðasta ár í sögu knattspyrnudeildar Sindra var fyrir margra hluta sakir bæði ánægjulegt og erfitt. Meistaraflokkur karla náði sér aldrei á strik og féll aftur niður í 3. deild. Árið var meistaraflokki kvenna einnig nokkuð erfitt en þess ber auðvitað að geta að liðið var mjög ungt að árum. Aftur á móti náðu yngri flokkar félagsins mjög góðum árangri í sumar og voru deildinni til mikils sóma hvert á land sem farið var. T.a.m. varð 3. flokkur karla Íslandsmeistari í 7 manna bolta auk þess sem margir aðrir flokkar náðu mjög góðum árangri.

Á síðasta aðalfundi var samþykkt tillaga frá stjórn þess efnis að stefna bæri að því að tvískipta rekstri deildarinnar, annars vegar í rekstur yngri flokka og hins vegar í rekstur meistaraflokka. Stjórnin hefur unnið hart í þessum málum á síðustu vikum og mánuðum og verður tillaga þess efnis að stofna beri sérstakt rekstrarfélag um rekstur meistaraflokkanna á næsta starfsári lögð fram á aðalfundinum. Meistaraflokkar félagsins hafa gengið í gegnum ákveðinn öldudal á síðustu árum og mikilvægt er að skapa þeim betri umgjörð þannig að við eigum meiri möguleika á því að halda lengur í okkar unga og efnilega knattspyrnufólk. Stofnun sérstaks rekstrarfélags er liður í því. Með þessu móti verður líka algjörlega komið í veg fyrir það að meistaraflokkar verði reknir fyrir fjármuni sem ætlaðir eru yngri flokkunum og komið í veg fyrir vangaveltur um að slíkt eigi sér stað.

Á síðustu vikum og mánuðum hefur stjórnin unnið hörðum höndum að gerð handbókar fyrir starfsemi yngri flokka deildarinnar. Slík handbók ætti að geta nýst öllum þeim sem starfa fyrir deildina sem og foreldrum þeirra barna sem stunda æfingar hjá félaginu. Mikilvægt er að allir séu vel upplýstir um starf og starfshætti deildarinnar þannig að fólk geti komið ábendingum á framfæri við stjórnina um það sem mætti betur fara. Á aðalfundinum verður handbókin kynnt og lögð fyrir fundinn.

Stjórn knattspyrnudeildar Sindra hvetur allt áhugafólk um framþróun og virðingu knattspyrnu á Hornafirði til þess að mæta á fundinn í kvöld og kynna sér málin.

- Stjórn knd. Sindra

  

Handbók UMF Sindra 2008-2010 (pdf)

UMF Sindri Skýrsla stjórnar starfsárið 2007 (pdf)

  

 


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica