Sindra fréttir
E-lið Sindra

Aðalfundur Knattspyrnudeildar Sindra

Aðalfundur Knattspyrnudeildar Sindra var haldinn föstudagskvöldið 7.mars. Fundurinn hafði verið auglýstur kvöldið áður en var frestað vegna veðurs.
Árni Þorvaldsson flutti skýrslu stjórnar og var byrjað á að ræða um þá skiptingu sem unnið hafi verið eftir á síðasta starfsári stjórnarinnar, þ.e. að mynda stjórn um rekstur yngri flokkanna annars vegar og 2.flokk og meistaraflokkanna hins vegar. Ræddi hann síðan um þjálfaramál, mótamál og frammistöðu einstakra flokka.
Halldóra Guðmundsdóttir fylgdi reikningunum úr hlaði og kynnti þann viðsnúning sem orðin er í rekstri deildarinnar. Halli síðasta árs var 615 þús. króna á móti 4 millj. á árinu þar áður. Erfitt var að greina milli ýmissa tekju og rekstrarliða hjá meistaraflokkum annars vegar og yngri flokka hins vegar. Með miklu starfi hefur þó tekist að greina þetta það vel í sundur að á síðasta ári var sameiginlegur kostnaður 564.000, kr. á móti rúmlega 3,1millj. árið 2006. Að þessu loknu voru umræður um skýrslu stjórnar og reikninga, þar sem rætt var um: þjálfarakostnað, Sindraskrá og leikmannakaup. Voru síðan reikningarnir samþykktir samhljóða.
Var síðan kynntur samningur milli Knd. Sindra og Tryggingamiðstöðvarinnar, um auglýsingar og styrki TM, síðan var boðið uppá kaffi og tertu í boði TM.
Eftir kaffihlé voru lagðar fram tillögur stjórnar sem voru tvær. Sú fyrri var um handbók yngriflokkaráðs knattspyrnudeildarinnar. Í þeim umræðum var rætt um uppsetningu handbókarinnar, kosti þess að hafa svona handbók og síðan aðkomu foreldra að tómstundaiðkun barna sinna. Eftir töluverðar umræður var tillagan samþykkt með fyrirvara.
Seinni tillagan var um skiptingu knattspyrnudeildarinnar, þ.e. að skipta deildinni upp í tvær sjálfstæðar einingar.
Kom Árni Þorvaldsson og tilkynnti að þau Halldóra Guðmundsdóttir og Miralem Haseta myndu hætta í stjórn deildarinnar, voru þeim þökkuð góð störf. Einnig kom fram að Árni Rúnar Þorvaldsson myndi láta af störfum sem formaður knd. Sindra eftir þriggja ára starf.
Voru því kosnar tvær stjórnir, stjórn rekstrarfélags meistaraflokks (og annars flokks) og í henni eiga sæti: Gunnar Ingi Valgeirsson, formaður, Árni Rúnar Þorvaldsson og Gunnar Þorláksson.
Í stjórn knattspyrnudeildar (yngri flokkar), voru kosin: Nökkvi Jóhannesson, formaður, Gauti Árnason og Valdís Kjartansdóttir. Jafnframt var Nökkvi Jóhannesson kjörinn formaður knd. Sindra.
Stjórn knattspyrnudeildar


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica