Sindra fréttir
Sindri - Ægir 20.8.2005

Fótboltasumarið fer af stað

Grasið er orðið grænt og knattspyrnufólk er búið að taka fram takkaskóna. Um helgina hefst knattspyrnuvertíðin hjá Sindra með leik 3. flokks karla á Sindravöllum við Selfoss laugardaginn 24. maí kl. 16:00. Leikurinn verður vígsluleikur á nýjum velli Sindramanna á Sindravöllum. Í 3. flokki karla æfir öflugur hópur drengja sem eiga vonandi eftir að ná góðum árangri í sumar. Ástæða er til að hvetja fólk til þess að mæta á völlinn og sjá þennan fyrsta leik sem fram fer á nýjum velli.

Mánudaginn 26. maí kl. 20:00 spilar meistaraflokkur kvenna sinn fyrsta leik á tímabilinu á Sindravöllum við Hött frá Egilsstöðum. Þetta verður fyrsti leikurinn sem stelpurnar leika undir stjórn nýrra þjálfara, Jónu Bennýjar Kristjánsdóttur og Söndru Sigmundsdóttur. Undanfarnar vikur hafa nokkrir nýir leikmenn gengið til liðs við meistaraflokk kvenna hjá Sindra. Síðustu ár hefur liðið verið mjög ungt að árum en náð nokkuð góðum árangri. Nú hefur reynslan í liðinu aukist töluvert og því verður spennandi að fylgjast með gengi þeirra í sumar.

Þriðjudaginn 27. maí kl. 17:00 spilar 5. flokkur karla við Fjarðabyggð/Leikni á Sindravöllum og 5. flokkur kvenna spilar við sama lið á Sindravöllum fimmtudaginn 29. maí kl. 17:00 á Sindravöllum. Laugardaginn 31. maí kl. 16:00 spilar 4. flokkur kvenna sinn fyrsta leik á tímabilinu við Hött á Sindravöllum.

Meistaraflokkur karla spilar sinn fyrsta leik á tímabilinu laugardaginn 31. maí kl. 14:00 í Fjarðabyggðarhöllinni við Leikni frá Fáskrúðsfirði. Undanfarin ár hafa verið meistaraflokki nokkuð erfið . Liðið hefur misst nokkra leikmenn frá síðasta keppnistímabili. En nokkrir sterkir leikmenn hafa hins vegar gengið til liðs við liðið á síðustu mánuðum sem koma til með að styrkja liðið. Mikill hugur er í strákunum fyrir keppnistímabilið og þeir hafa æft mjög vel á undirbúningstímabilinu undir stjórn Hajrudins Cardaclija. Það verður því spennandi að fylgjast með strákunum í sumar. Fyrsti heimaleikur meistaraflokks karla fer fram föstudaginn 6. júní kl. 20:00 þegar liðið spilar við Spyrni.

Það er ástæða til þess að hvetja alla Hornfirðinga til þess að fjölmenna á völlinn í sumar til þess að styðja við bakið á liðum Sindra á öllum aldri í sumar.


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica