Fyrstu leikirnir á nýjum Sindravöllum
Vígsluleikur nýrra Sindravalla var laugardaginn 24. maí þegar 3. flokkur karla spilaði við öflugt lið Selfyssinga. Leikar enduðu þannig að Selfoss vann 3 - 0 í hörkuleik tveggja vel spilandi liða. Greinilegt var þó að lið Selfoss er í töluvert betri leikæfingu en Sindramenn. Það var munurinn á liðunum þegar þau mættust á Sindravölllum og vígðu völlinn. Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri mætti á leikinn og afhenti Nökkva Jóhannessyni, formanni knattspyrnudeildar Sindra blómvönd áður en leikurinn hófst með ósk um um gott gengi Sindramanna á nýjum velli.
Þrátt fyrir tapið sýndu Sindrastrákarnir fína takta á vellinum og börðust vel. Með sama áframhaldi eiga þeir eftir að velgja mörgum liðum undir uggum og ná góðum árangri. Næsti leikur strákanna fer fram 7. júní á Leiknisvelli í Breiðholtinu.
Meistaraflokkur kvenna spilaði sinn fyrsta leik á tímabilinu síðastliðið mánudagskvöld. Þá mættu stelpurnar Hetti frá Egilsstöðum. Töluverð spenna var í loftinu fyrir leikinn enda var þetta fyrsti alvöru leikur liðsins undir stjórn nýrra þjálfara, Jónu Bennýjar Kristjánsdóttur og Söndru Sigmundsdóttur. Sindrastelpur mættu ákveðnar til leiks og strax á upphafsmínútunum fengu þær upplögð tækifæri til þess að ná forystunni en fóru illa með færin. Á 21. mínútu náði hins vegar Jóna Benný Kristjánsdóttir forystunni fyrir Sindra með góðu marki. Eftir markið slökuðu Sindrastelpur aðeins á klónni og Hattarliðið gekk á lagið. Þær skoruðu þá tvö mörk á fjögurra mínútna kafla og staðan í hálfleik var 2 - 1 Hattarstelpum í vil. Á 70. mínútu bættu síðan Hattarstelpur við þriðja markinu og þá var orðið ljóst róðurinn var orðinn þungur fyrir Sindrastelpur. En með frábærri baráttu og góðri spilamennsku tókst þeim að koma sér aftur inn í leikinn. Þegar fjórar mínútur voru til leiksloka náði Heba Björg Þórhallsdóttir að minnka muninn í 3 - 2 með glæsilegur skoti beint úr aukaspyrnu. Við tóku spennandi lokamínútur þar sem Sindrastelpur lögðu mikla baráttu í að reyna að jafna leikinn en það tókst ekki þrátt fyrir ágætar tilraunir.
Lið Sindra sýndi mikinn vilja og baráttu í leiknum. Með sama hugarfari þurfa stelpurnar ekki að kvíða sumrinu. Næsti leikur liðsins verður næsta föstudag. Þá fara stelpurnar á Egilsstaði og etja aftur kappi Hött og fá þá tækifæri til þess að hefna fyrir tapið. Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu margir áhorfendur sáu sér fært að mæta á völlinn til þess að fylgjast með liðunum. Það er vonandi áframhald verði á því í sumar vegna þess að stuðningur áhorfenda skiptir gríðarlega miklu máli fyrir leikmenn og þjálfara.
Í dag, þriðjudag 27. maí fór svo fram fyrsti leikurinn í Austurlandsriðli 5. flokks karla þegar strákarnir mættu Fjarðabyggð/Leikni og endaði þessi æsispennandi markaleikur með 3 -3 jafntefli. Um hörkuleik var að ræða og voru Sindrastrákarnir óheppnir að landa ekki sigri. En engu síður er þetta fyrsta stigið sem næst í hús á nýjum Sindravelli.
u.


