Sindra fréttir
3. flokkar Sindra 2008
Mynd 2 af 3
1 2 3

3. flokkar Sindra í Noregi

31. manna hópur frá Sindra auk þjálfara og fararstjóra eru nú að keppa í Noregi á móti sem heitir Norway Cup.
Það eru 3. flokkar karla og kvenna sem eru með þrjú lið. Tvö í sjö manna bolta og eitt í ellefu manna bolta. Öll liðin eru komin áfram eftir undankeppnina, Strákarnir í sjö manna boltanum unnu sinn riðil, stelpurnar í öðru sæti og strákarnir í ellefu manna boltanum urðu í 3. sæti í sínum riðli. Öll þessi lið fara áfram, sjö manna liðin í A úrslit en ellefu manna liðið í B úrslit og hefjast þau á morgun.

Mikil gleði er hjá hópnum, helmingurinn af krökkunum fóru á ströndina, en hinn helmingurinn í miðbæ Oslóar að spóka sig, enda hitinn í dag yfir 30 gráður og það þriðja daginn í röð! Allt hefur gengið að óskum og biðja allir fyrir bestu kveðjum heim. Þess má til gamans geta að nýr búningur var hannaður fyrir þessa ferð eftir 30 ára gömlum Sindrabúning og það var Mikael ehf. sem gaf þeim þann búning.


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica