Sindra fréttir
DSCF9958
Mynd 2 af 6
1 2 3 4 5 6

Frábær árangur á Meistaramóti Íslands

Fannar Blær Austar Egilsson og Sveinbjörg Zophoníasdóttir voru sigursæl á Meistaramóti Íslands 15-22 ára á Sauðárkróki um helgina. Þau eru bæði 16 ára og unnu þau samtals 8 gull. Sveinbjörg varð Íslandsmeistari í langstökki, stökk 5.42 m og í þrístökki þar sem hún stökk 11.41 m en hvoru tveggja er lengra en gildandi Úlfsljótsmet en því miður var meðvindur of mikill. Hún bætti þó þrjú önnur Úlfljótsmet; í kringlukasti og kúluvarpi og varð íslandsmeistari í þeim greinum ásamt spjótkasti. Þá var 80m grindarhlaup þriðja Úlfljótsmetið sem hún bætti á mótinu en hafnaði þar í 4. sæti. Einnig fékk hún silfur í hástökki.
Fannar Blær varð Íslandsmeistari í 800 m, 3000 m og svo einnig í 1500 m hlaupi þar sem hann bætti eigið Úlfljótsmet um 5 sekúndur.
Jón Snorri Þorsteinsson keppti líka á mótinu og fékk brons og bætti Úlfljótsmetið í sleggjukasti 17-18 ára. Björn Ármann Jónsson keppti sömuleiði og komst í úrslit í öllum sínum greinum þrátt fyrir að keppnin væri hörð í hans aldursflokki.
Þessi árangur ungmennanna má teljast mjög góður og óskum við þeim til hamingju. Loksins er frjálsíþróttaaðstaða á Hornafirði með þeim betri á landinu og eins sést af ofangreindu stendur árangurinn hjá okkar fólki ekki á sér. Góð aðstaða og ástundun verður þess valdandi að hver uppsker sem hann sáir.
Fjórir frjálsíþróttaþjálfarar hafa lagt sitt af mörkum til starfsins í sumar og eigi þeir þakkir skildar fyrir frábær störf. Það eru þau Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, Bjarni Malmquist Jónsson, Stefanía Hákonardóttir og Guðrún Ingólfsdóttir. Nánari upplýsingar um árangur krakkanna á meistaramótinu er eins og hér segir:

Jón Snorri Þorsteinsson (1991): Sleggjukast (5,5 kg) 26,24m (USÚ met), kringlukast (1,5 kg) 32,47 m, kúluvarp (5,5, kg) 12,22 m (persónulegt met), Spjótkast (800 g) 40,74 m.
Fannar Blær Þorsteinsson (1992): 1500m 4:21,78 . mín. (USÚ met), 800m 2:10,23 mín., 3000m 9:55,01 mín.
Björn Ármann Jónsson (1992): Sleggjukast (4 kg) 22,63 m (persónulegt met), kringlukast (1 kg) 32,04 m, kúluvarp ( 4 kg) 11,11 m, spjótkast (600 g) 38,92 m.
Sveinbjörg Zophoníasdóttir (1992): 80 m grindahlaup 13.61 sek. (USÚ met), kúluvarp (3 kg) 12.20 m,(USÚ met), kringlukast (600 g) 37,95 m (USÚ met), langstökk 5.42 m, þrístökk 11.41 m, spjótkast (600 g) 31.39 m, hástökk 1,58 m.


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica