Sindra fréttir
Sveinbjörg og Guðrún
Mynd 3 af 3
1 2 3

Sveinbjörg á Heimsmeistaramót unglinga í 7 þraut.

Sveinbjörg Zophoníasdóttir keppti um helgina á Norðurlandameistaramóti 22 ára og yngri sem fram fór í Kópavogi. Í hennar flokki voru 12 keppendur og lenti hún í 3 sæti. Hún bætti sig verulega í 5 greinum af sjö og í heildarstigum úr 3950 í 4860 stig. Þessi glæsilega frammistaða hennar fleytir henni á Heimsmeistarmót 17 ára og yngri sem fram fer á Ítalíu 9 júlí. Aðeins eru tveir unglingar frá Íslandi búnir að ná lágmörkum á þetta mót en lámarkið í 7 þrautinni er 4500 stig svo Sveinbjörg er vel yfir því lámarki. Þess má geta að þjálfari hennar og móðir er Guðrún Ingólfsdóttir landsþekkt frjálsíþróttakona og núverandi íslandsmethafi í kringlukasti kvenna en met hennar er með elstu íslandsmetunum. Að sögn Guðrúnar mun hún fara út með dóttur sinni sem þjálfari og aðstoðarmaður. Þess má  einnig geta að Sveinbjörg er líka búin að ná lámarki í langstökki á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar sem fram fer í Finnlandi  20.júlí.


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica