Sindra fréttir
Sindra-logo

Fyrsta verkefni íslenskra kvendómara á erlendri grundu

Guðrún Fema Ólafsdóttir verður dómari á Opna NM í Svíþjóð

Guðrún Fema Ólafsdóttir frá Hornafirði verður fyrsta íslenska konan sem fær dómaraverkefni í knattspyrnu erlendis. Hún mun starfa við opna Norðurlandamótið í U17 ára landsliðum kvenna sem fer fram í Svíþjóð um mánaðamótin. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskur kvendómari fær alþjóðlegt verkefni á erlendri grundu.

Mótið hefst á mánudaginn kemur og koma flestir dómararnir og aðstoðardómararnir frá Svíþjóð, en einnig frá Finnlandi, Noregi, Þýskalandi, Sviss og Rúmeníu, auk Guðrúnar Femu.

Hún er tvítug að aldri og dæmir fyrir Sindra á Hornafirði en Guðrún Fema hefur verið markvörður kvennaliðs Sindra undanfarin ár.

 

 


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica