Blakhelgi á Hornafirði
Mikið var um að vera í íþróttahúsinu á Höfn um helgina en þar voru spilaðir tuttugu og þrír blakleikir í Íslandsmóti 2. og 3. deildar austur. 3. deildin var spiluð sem túrnering þar sem sjö kvennalið spiluðu tuttugu og einn leik á laugardag og sunnudag. Liðin sem kepptu á mótinu auk Sindra voru Höttur Egilsstöðum, Valur Reiðarfirði, Leiknir Fáskrúðsfirði, Huginn Seyðisfirði og frá blakbænum Neskaupstað kepptu tvö Þróttar lið. 3. deildin er spiluð í þremur túrneringum og var sú fyrsta á Seyðisfirði í lok nóvember, annar hlutinn fór svo fram hér um helgina og þriðji hlutinn verður spilaður 27. – 28. febrúar á Fáskrúðsfirði. Sindri gat ekki tekið þátt í fyrsta hluta mótsins og var því skráð á liðið tap í öllum leikjum, þrátt fyrir það er liðið í næst neðsta sæti riðilsins og stefnir á að hífa sig hærra upp í lokamótinu.
Á sunnudeginum kepptu bæði karla- og kvennalið Sindra við Hött í 2. deild. Báðir leikirnir voru spennandi og skemmtilegir og lauk þeim báðum með sigri Sindra. Karlarnir unnu sinn leik 3:1 þar sem hrinurnar fóru 25-15, 21-25, 25-17 og 25-21. Konurnar unnu einnig 3:1 og fóru hrinurnar 27-25, 25-12, 20-25 og 25-22. Karlalið Sindra er nú í öðru sæti riðilsins og konurnar í því fyrsta.
Ágætis mæting var af íbúum svæðisins á pallana og er það von Blakdeildar Sindra að þeir hafi skemmt sér vel við að fylgjast með leikjum helgarinnar. Næstu leikir hér heima í 2. deild verða föstudaginn 29. janúar þegar karla- og kvennalið Leiknis mæta á svæðið.
Helgin gekk mjög vel fyrir sig og nýttu gestirnir sér frábæra þjónustu hér á Höfn m.a. hvað varðar gistingu og mat. Þeir létu vel af móttökunum og héldu sælir til síns heima eftir ljúfan lokapunkt í sundlauginni okkar frábæru. Blakdeildin þakkar öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum við framkvæmd og umgjörð þessa móts, vel unnin störf. Sérstakar þakkir fá krakkarnir sem unnu í blak-sjoppunni báða mótsdagana.
Fyrir hönd Blakdeildar Sindra, Hulda L.H.


