Sindri safnar fartölvum og GSM símum
Félagar í Sindra hyggjast hefja nýstárlega fjáröflun sem felst í því að safna gömlum fartölvum og GSM símum sem ekki eru lengur í notkun á heimilum og hjá fyrirtækjum í bænum. Þá ætla félagar í Sindra einnig að safna gömlum stafrænum myndavélum, upptökuvélum og MP3 spilurum.
· Sindri fær greitt fyrir þau tæki sem safnast en þau eru flutt út í endurnýtingu og munu þeir fjármunir meðal annars nýtast í starfsemi félagsins.
· Fyrirtækið Græn framtíð annast flutning á tækjunum til viðurkenndra endurvinnslufyrirtækja erlendis sem tryggja endurnýtingu á þeim með ábyrgum hætti.
· Heilir símar og fartölvur verða meðal annars nýttir áfram í þróunarlöndum og íhlutir úr ónýtum tækjum verða nýttir í annan búnað. Þá verður spilliefnum úr þeim eytt með löglegum hætti.
· Hægt að að hringa í síma 868 6865 eða koma tækjunum í Sindraskrifstofuna Hafnarbraut 25.
Með kveðju,
félagar í Sindra.


