Sindra fréttir
Meistaramót Íslands 11-14 ára í fjrálsum innanhúss
Mynd 1 af 3
1 2 3

Fréttir frá frjálsíþróttadeildinni.

 

Helgina 13-14 mars sl. fóru 6 vaskir keppendur frá USÚ á Meistaramót Íslands 11-14 ára innanhúss. Þetta voru þau Anna Birna Elvarsdóttir, Anna Soffía Ingólfsdóttir, Inga Kristín Aðalsteinsdóttir, Sigrún Salka Hermannsdóttir, Kristófer Laufar Hansson og Rannver Olsen. Alls voru þarna 379 keppendur frá 19 félögum, þannig að þetta er mjög fjölmennt mót. Krakkarnir okkar stóðu sig að sjálfsögðu mjög vel og voru okkur til sóma. Ekki fengum við mikið af verðlaunapeningum að þessu sinni en það segir nú ekki allt, þó fékk Sigrún Salka silfurverðlaun í kúluvarpi og kastaði 9,24 sem verður að teljast mjög gott. Hún lenti líka í 4. sæti í hástökki þar sem hún stökk yfir 1,35 eins og sú sem var í 3. sæti en Salka hafði fellt oftar. Stelpurnar hlupu líka boðhlaup þar sem þær sigruðu sinn riðil mjög örugglega en því miður þá var það ekki alveg nóg því að hinn riðillinn var hraðari þannig að stelpurnar okkar enduðu í 4. sæti sem er samt frábær árangur! Það má eiginlega segja það að óvæntustu úrslitin hjá okkar krökkum hafi  verið þau að Anna Birna hljóp sig inn í úrslit í grindarhlaupi, en það er grein sem krakkarnir hafa ekkert æft síðan s.l. sumar, og þá bara lítið. Anna Birna endaði í 7. sæti á 11,26 sem er bara frábær árangur miðað við engan undirbúning. Í svona keppni er keppt um stig þannig að sá sem lendir í 10. sæti fær 1 stig og sá sem er í 9. sæti fær 2 o.sv. frv. upp í að sá sem lendir í 1. sæti fær 10 stig. 13 ára stelpurnar okkar fengu 12 stig og lentu í 11. sæti af 14. 13 ára strákarnir okkar lentu í 13 sæti af 16. 12 ára stelpan okkar (Sigrún Salka var ein 12 ára frá okkur) fékk 27 stig og hafnaði í 4 sæti af 14. Í samanlögðum stigum var því USÚ með 39 stig og endaði í 13 sæti af 19 sem verður bara að teljast stórgott miðað við hvað okkar keppendur eru fá. T.d. var Ármann fyrir neðan okkur í stigum en þau höfðu 21 keppanda, og er mikið stærra félag en við.

Það er svo stór partur af öllum íþróttum að vera saman og gera eitthvað saman þannig að liðið dreif sig í bíó og horfði á Alice in Wonderland í 3d.

Við þökkum svo Jóhönnu  þjálfara fyrir aðstoðina á mótinu og að sjálfsögðu öllum foreldrunum sem sáu sér fært að aðstoða krakkana á þessu móti. Þið eruð BEST!

Nú styttist óðfluga í sumarið og þess vegna ætlum við að fara að æfa úti. Guðrún Ingólfsdóttir ætlar að stýra æfingunum hjá 11 ára og eldri fram á vorið og nýtur hún til þess dyggrar aðstoðar þeirra Sveinbjargar og Jóns Snorra , sem ættu að geta kennt krökkunum ýmsa tækni sem þau koma til með að geta nýtt sér á komandi sumri.

Fyrsta mót sumarsins hjá 11-14 ára er óvenju snemma í ár eða helgina 12-13. júní. Þá verður Meistaramót Íslands utanhúss haldið í Kópavogi og vonumst við til að geta farið með ennþá fleiri keppendur á það mót.

 

Munið að ÞAÐ ER FJÖR Í FRJÁLSUM!

Kv. Frjálsíþróttadeild Sindra


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica