Sindra fréttir
Öldungamótið 2010
Mynd 7 af 7
1 2 3 4 5 6 7

Tóku þátt í Öldungamóti BLÍ þrettánda árið í röð

Blakiðkendur 30 ára og eldri úr blakdeild Sindra tóku um helgina þátt í Öldungamóti Blaksambands Íslands (BLÍ), sem haldið var í Mosfellsbæ. Fjögur lið kepptu undir merkjum Sindra, alls 28 iðkendur.
Öldungamótið í ár var stærsta mót sem haldið hefur verið frá upphafi og  voru keppendur rúmlega þúsund í 125 liðum frá 53 félögum. Aðeins fjögur félög á landinu sendu fleiri en fjögur lið til keppni, þannig að Sindri má vera sáttur við sinn hlut í þessu móti. Í kvennaflokki var keppt í ellefu deildum og liðin tvö frá Sindra léku í fjórðu og níundu deild og karlarnir voru með lið í fimmtu og sjöttu deild en þar voru deildirnar alls sex.

Þetta er þrettánda árið í röð sem Sindri tekur þátt í Öldungamóti BLÍ og var árangur liðanna vel viðunandi í ár. Konurnar í níundu deild komust á pall, þær lentu í þriðja sæti og konurnar fjórðu deild lentu í fjórða sæti. Karlarnir í sjöttu deild enduðu í fimmta sæti og karlarnir í fimmtu deild gerðu sér lítið fyrir, sigruðu sína deild og munu því leika í fjórðu deild að ári á Öldungamótinu sem haldið verður í Vestmannaeyjum.

Þessari miklu blakhelgi lauk svo með stórglæsilegu lokahófi þar sem fólk á aldrinum 30 – 73 ára kom saman, borðaði góðan mat, söng og dansaði fram á morgun og var ekki að sjá á nokkrum manni að hann væri rétt ný lokinn við að keppa sex þræl erfiða blakleiki á þremur dögum.

Iðkendur í Blakdeild Sindra eru nú allir komnir í sumrafrí og láta sig hlakka til næsta hausts þegar netið verður sett upp og boltanum blakað að nýju. Þjálfarar vetrarins þau Róbert, Hulda, Sævar og Sigga þakka öllum iðkendum kærlega fyrir samveruna í vetur. Þau hvetja Hornfirðinga á öllum aldri til að líta við á blakæfingum í haust og vera með í bráðskemmtilegum félagsskap,  heilsusamlegri líkamsrækt og drengilegri keppni.


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica