Sindra fréttir
Sveinbjörg og Einar í unglingalandsliðið
Mynd 1 af 2
1 2

Tvö ungmenni úr USÚ í íslenska unglingalandsliðið

Þau Sveinbjörg Zophoníasdóttir og Einar Ásgeir Ásgeirsson voru valin í dag í íslenska unglingalandsliðið í frjálsum íþróttum.
Þau keppa fyrir Íslandshönd á Norðurlandameistaramóti  U20 sem fram fer á Akureyrir í þetta sinn, dagana 28-29 ágúst.
Sveinbjörg keppir í 2 greinum langstökki og 4x100m boðhlaup og Einar Ásgeir keppir í 1500m hlaupi. Það þarf nú vart að segja það en þetta er mjög glæsilegur árangur hjá þeim báðum og eru þau stolt okkar Hornfirðinga. Guðrún Ingólfsdóttir þjálfari þeirra sagði að frábær aðstaða hér á Höfn gerbreytti stöðu frjálsíþróttafólks og væri það að skila sér með þessum góða árangri ungmennana. Þau Sveinbjörg og Einar eru líka mjög dugleg að æfa sig og taka íþrótt sína alvarlega.


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica