Útikörfuboltavöllur vígður
Nýr útikörfuboltavöllur á miðsvæðinu var vígður miðvikudaginn 25. ágúst. Um er að ræða körfuboltavöll sem er sömu stærðar og þvervellir í íþróttahúsinu. Völlurinn er samsettur úr plastflísum sem lagðar eru niður á malbik. Það voru stjórnarmenn í körfuknattleiksdeildinni, körfuboltaiðkendur og aðstandendur þeirra sem lögðu völlinn af einskærri snilld. Ungmennafélagsandinn skein úr hverju andliti þessa stund sem völlurinn var lagður niður. Völlurinn hefur mikið verið notaður og er frábær viðbót við önnur íþróttamannvirki hér á Höfn. Vígsluleikurinn var á milli stjórnar körfuboltadeildarinnar og bæjarstjórnarinnar. Bæjarstjórnin mætti með bæjarstjórann og yfirmann framkæmdasviðs og fóru þeir mikinn á vellinum. Dómarar voru þeir Skúli og Óskar og báru þeir full mikla virðingu fyrir bæjarráðsmönnum að mati fulltrúa körfuknattleiksdeildar. Framan af leiddi körfuboltadeildin leikinn en tókst þó ekki að hrist bæjarstjórnina af sér enda útsmognir og gamalreyndir refir á ferð sem mörðu sigur í lokin með tveggja stiga mun 11-9. Þeir sem nota völlinn eru hvattir til að ganga vel um hann. Bannað er að hjóla á vellinum og gæta verður þess að vera ekki með tyggjó inni á vellinum.


