Sigraði á íslandsmeistaramót í bekkpressu
Þann 29. janúar s.l.var hið árlega íslandsmeistaramót í bekkpressu haldið af Kraftlyftingafélagi Akranes. Vel var að mótinu staðið og þátttaka góð, 8 konur mættu til keppni og 24 karlmenn á öllum aldri. Kraftlyftingafélag Sindra á Hornafirði var með sinn fulltrúa á mótinu Inga Stefán Guðmundsson sem keppti í -105 kg flokki. Hann gerði sér lítið fyrir og sigraði flokkinn með þó nokkrum yfirburðum og setti í leiðinni nýtt íslandsmet þegar hann lyfti 215 kg. Þetta er í áttunda skipti sem Ingi Stefán tekur þátt í mótinu og þriðji íslandsmeistaratitillinn hans.
Frekari upplýsingar er að finna á kraft.is


