Sindra fréttir
Nýr Sindrabíll

Nýr bíll til Sindra

Um þessar mundir er ungmennafélagið Sindri að taka í notkun nýjan bíl, 9 manna fjórhjóladrifna Toyotu Hiace árgerð 2007. 

Eins og Hornfirðingar vita hefur Sindri gert út tvo bíla fyrir iðkendur og er annar þeirra farin að líta upp á landið.  Var það mat stjórnar félagsins að kominn væri tími til að endurnýja hann og hafa auknar vetrarferðir félagsmanna í huga við val á nýjum bíl.  Flestar deildir innan Sindra ferðast mikið á veturna þegar allra veðra er von og oftast um langan veg að fara. 

 

Ungmannafélagsandinn

Fyrir ungmanafélag eins og Sindra verður það seint þakkað þegar einstaklingar og fyrirtæki eru tilbúin að leggja starfsemi þess lið ekki síst þegar um er að ræða málefni sem varðar unga fólkið og aðstandendur þeirra.  Það var fyrir tilstuðlan slíkra aðila sem hægt var að ráðast í kaup á þessum bíl sem mun létta verulega undir með foreldrum og iðkendum í flestum deildum um leið og öryggi í ferðum eykst.  Hjónin Þorbjörg Gígja og Ottó, útgerð Sigurðar Ólafssonar auk útgerðarmanna hér á Höfn fjármögnuðu kaupin á bílnum og vill stjórn ungmennafélagsins Sindra vill koma á framfæri sérstökum þökkum til allra þessara aðila.  Þeir sýndu svo sannarlega ungmennafélagsanda í verki með því að styðja svona rausnarlega við bakið á starfsemi Sindra.  Ekkert af þessum dyggu stuðningsaðilum hafði uppi óskir um að fá eitthvað í staðinn heldur vildu þeir með þessu móti styðja grunneiningu í samfélaginu en hvöttu þó til þess að félagið stæði að því að við gengjum öll vel um landið okkar og sýndum hvert öðru virðing í verki. 

 

Það er von okkar í stjórn Sindra að félagsmenn Sindra og Hornfirðingar allir noti árið 2011 til þess að líta í eigin barm.  Fari að hreyfa sig meira en beri um leið virðingu fyrir okkar fallega umhverfi, varist að skemma það með illri umgengni eða óþarfa utanvega akstri.   

 

Fyrir hönd stjórnar Sindra
Ásgrímur Ingólfsson


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica