Páll Róbert bestur í 2. deild
Meistaraflokkur karla í blaki spilaði til úrslita á Íslandsmótinu í 2. deild um síðustu helgi í Reykjavík.
Fjögur lið - Sindri, Þróttur Nes, HKb og Hrunamenn - spiluðu um eitt laust sæti í 1. deild. Sindramenn léku fyrst við HKb og töpuðu 3 -1. Næst léku þeir gegn Hrunamönum í leik um 3. sætið. Sindramenn töpuðu honum 3 – 0 og enduðu í 4.sæti.
Á laugardagskvöldið hélt Blaksambandið árshátíð og þar var Páll Róbert (Robbi) þjálfari Sindra kosinn blakmaður 2. deildar. Blakdeild Sindra óskar Robba til hamingju með titilinn.
Framundan hjá blakdeildinni er Íslandsmót í krakkablaki en þar ætlar Sindri að mæta með fjögur lið. Síðan er öldungamótið sem verður haldið í Vestmannaeyjum að þessu sinni en þangað ætlar Sindri að senda tvö karlalið og eitt kvennalið.


