Fjölmennt þing USÚ
Fimmtudaginn 14. apríl var 78. ársþing USÚ haldið á Hótel Höfn. Þingið var fjölmennt enda aðildarfélög USÚ mörg og virk í starfsemi sinni sem er gleðilegt og endurspeglar það öfluga ungmenna- og íþróttastarf sem er í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Hæst ber af starfi þingsins að USÚ samþykkti forvarnarstefnu félagsins og samþykkti einnig að sækja um að fá að halda Unglingalandsmót UMFÍ annað hvort árið 2013 eða 2014.
Að venju sóttu gestir þingið og að þessu sinni voru það Sæmundur Runólfsson framkvæmdastjóri Ungmennafélags Íslands og Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdarstjóri Íþrótta- og ólympíusambands Íslands. Það er gleðilegt frá því að segja að tveir ungmennafélagar þau Valdemar Einarsson og Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir hlutu starfsmerki UMFÍ og Ragnhildur Einarsdóttir hlaut gullmerki ÍSÍ.
Fráfarandi stjórn USÚ afhenti Íþróttamanni USÚ Sveinbjörgu Zophoníasdóttur styrk að upphæð 500.000 kr. til að standa straum af æfingum og keppnisferðum innanlands sem utan en hún mun sækja fjölmargar keppnir á erlendri grundu næsta sumar.
Ný stjórn var kjörin og inn komu Matthildur Ásmundardóttir og Sigurður Óskar Jónsson og áfram situr Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir. Ragnhildur Einarsdóttir og Þorbjörg Gunnarsdóttir hættu í stjórn.


