Sindra fréttir
Sveinbjörg Zophoníasdóttir
Mynd 2 af 3
1 2 3

Sveinbjörg í A landslið Íslands

Sveinbjörg Zophoníasdóttir  frjálsíþróttakona var í gær valin í íslenska A  landsliðið sem er að fara á Smáþjóðaleikana í Lichtenstein 29.maí. 

Hún var valin til að keppa í langstökki, hástökki og kúluvarpi, þetta eru allt greina sem hún keppir í í sjöþrautinni og þess vegna er hún vel undirbúin í þeim. Sumarið verður viðburðaríkt hjá henni, hún fer á 4 mót erlendis auk Smáþjóðaleikanna. Það verður gaman að fylgjast með henni í sumar og að sögn þjálfara hennar er hún í feikna góðu formi og hefur verið mjög dugleg að æfa í vetur eins og endranær.
Við óskum henni velgengni á vellinum í sumar.

 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica