Körfuboltabúðir fyrir krakka í íþróttahúsinu um helgina
Körfuknattleiksdeild Sindra ætlar að halda körfuboltabúðir fyrir krakka á aldrinum 10-18 ára komandi helgi 12. til 14. ágúst. Búðirnar verða haldnar í íþróttahúsinu á Höfn og byrja þær kl. 17:00.
Aðalþjálfari búðanna verður Arnar Guðjónsson, þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins Åbyhoj. Með honum til aðstoðar verður Skúli Ingibergur, þjálfari Sindra.
Markmið búðanna er að efla grunnþekkingu leikmanna ásamt því að öðlast meiri þekkingu á leiknum. Verð er aðeins 3.500,- krónur
Lausleg dagskrá búðanna er eftirfarandi:
Föstudagur: Yngri hópur (fædd 1999-2001) kl 17:00 - 19:00 -- Eldri hópur (fædd 1998 og eldri) 19:00 - 21:00
Laugardagur: Yngri kl 13:00 - 14:00 og 17:00-19:00 Eldri 14:00-16:00 og 19:00-21:00
Sunnudagur Yngri kl 10:00-12:00 eldri 12:00-14:00
Nánari upplýsingar er hægt að fá á mailið sindrikarfa@gmail.com eða í síma 823 1832 eða 6909294. Ekki er sérstök þörf á að skrá þáttakendur sérstaklega heldur mæta menn bara tímanlega á svæðið og greiða í afgreiðslinni hjá honum Elvari. ATH að mikið verður um að vera í íþróttahúsinu þessa daga út af fótboltaleikjum þannig mælst er með því að krakkarnir mæti klárir í íþróttafötunum á æfingarnar.


