Freyjuhlaupið!
Laugardaginn 31.mars ætlar frjálsíþróttadeild Sindra í samstarfi við Sælgætisgerðina Freyju að standa fyrir nokkurskonar víðavangshlaupi.
Hlaupnar verða 3 vegalengdir og allar hér innanbæjar. Lengsta vegalengdin sem boðið verður upp á eru 10 km, næsta vegalengd eru 5 km og sú stysta eru 2,5 km. Keppt verður í karla og kvennaflokkum og til mikils er að vinna því Freyja ætlar að gefa sigurvegurunum gómsæt páskaegg en allir keppendur fá að sjálfsögðu líka góðan þátttökuglaðning frá Freyju.
Hlaupið verður frá íþróttahúsinu og hefst skráning kl 12:30. 10 km hlaupið verður ræst kl 13:00; 5 km hlaupið verður ræst kl 13:15 og 2,5 km hlaupið verður ræst kl 13:30. Þátttökugjald í þetta hlaup eru 500.- pr einstakling en hver fjölskylda greiðir þó aldrei meira en 1.500.-
Vonumst til að sjá sem flesta í páskaskapi!
Kv. Frjálsíþróttadeild Sindra og Sælgætisgerðin Freyja.


