Sindra fréttir
Úrslit í Freyjuhlaupinu
Mynd 1 af 6
1 2 3 4 5 6

Úrslit í Freyjuhlaupinu

Laugardaginn 31. mars s.l. stóðu frjálsíþróttadeild Sindra og Sælgætisgerðin Freyja fyrir Freyjuhlaupinu. Hlaupnar voru 3 vegalengdir í karla og kvennaflokki.

Alls tóku 52 hlauparar þátt í þessu með okkur og segja má að stemmingin hafi verið virkilega góð. Ásgeir í Freyju stóð svo vaktina og veitti verðlaun fyrir 3 fyrstu hlauparana í hverjum flokki og svo fengu að sjálfsögðu allir þátttakendur og áhorfendur gotterí frá Freyju.

Helstu úrslit eru þessi:

Kvennaflokkur:

10 km hlaup:
1.sæti Karítas Þórarinsdóttir á 50:31,60
2.sæti Guðrún Ingólfsdóttir á 50:31,76
3.sæti Matthildur Ásmundardóttir á 51:25,30

5 km hlaup:
1.sæti Alrún Irene Stephensdóttir á 28:38,00
2.sæti Anna Soffía Ingólfsdóttir á 37:40,79
3.sæti Ragna Steinunn Arnarsdóttir á 37:44,81

2,5 km hlaup:
1.sæti Guðný árnadóttir á 11:48,18
2.sæti Malín Ingadóttir á 11:50,84
3.sæti Regielly O Halldórsdóttir á 11:55,93

Karlaflokkur:

10 km hlaup:

1.sæti Hjálmar J Sigurðsson á 44:42,57
2.sæti Miralem Haseta á 45:38,58
3.sæti Halldór S Birgisson á 51:42,73

5 km hlaup:

1.sæti Jóel Ingason á 28:38,50

2,5 km hlaup:
1.sæti Auðunn ingason á 11:11,03
2.sæti Hermann Ragnarsson á 11:22,36
3.sæti Hafsteinn E Aðalsteinsson á 11:47,68

Við þökkum öllum þátttakendum og þeim sem aðstoðuðu okkur fyrir hjálpina því án ykkar væri þetta ekki hægt, og að lokum þá þökkum við Sælgætisgerðinni Freyju fyrir rausnarskap þeirra.

Frjálsíþróttadeild Sindra.


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica