Sindra fréttir
KND_Sindra

Ársmiðar á Sindravelli

Nú styttist í fótboltinn byrjar að rúlla og liðinn hjá  Sindra að vera klár í slaginn.  Að venju  er í boði ársmiði sem er hagstætt val þegar á allt er litið. 

Miðinn kostar 15.000 krónur þetta árið en ýmislegt fylgir þessum miða, en eins og undan farinn ár þá gildir hann fyrir 2 á alla leiki mfl flokka Sindra.  Að auki er kaffispjall með þjálfarar fyrir leik, og kaffi í hálfleik og á meðan leik stendur.  Auk þess er sú nýbreytni  að það er sigling á Jökulsárlón innifalin í miðanum og rúsínan í pylsu endanum  er sú að það fylgir  miði á mat og dansleik  á uppskeruhátíð Sindra í september . Þar er stefnt á flottan gala kvöldverð þar sem leikmenn og aðrir verða heiðraðir fyrir sína frammistöðu.  Það er von stjórnar að þetta falli vel í kramið hjá okkur Hornfirðingum  og menn mæti á völlinn sem aldrei fyrr.


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica