Sindra fréttir
Áfram Sindri

Boltinn rúllar og rúllar

Meistaraflokkar Sindra í öðru sæti sinna riðla eftir undanfarna leiki

Meistaraflokkur kvenna spilað tvo leiki í liðinni vikur þann fyrri í bikarkeppni KSÍ við Keflavík og lauk þeim leik með sigri gestana  3-1.  Þetta var nú frekar jafn leikur og þriðja mark gestanna kom eftir að leikmenn Sindra voru búnar að pressa mikið og reyna að jafna. Mark Sindra skoraði María Selma Haseta.  Seinni leikur meistaraflokks kvenna var við ÍA hér á laugardaginn þar sem rokið lék stórt hlutverk.  Leiknum lauk 0-0 og eiga Sindra stelpurnar mikið lof fyrir góða baráttu gegn sterku lið Akranes og á góðum degi gátum við alveg tekið öll stigin.  Stelpurnar í öðru sæti riðilsins með 7 stig
Meistaraflokkur karla spilaði við Stálúlf í Kópavoginum og lauk þeim með sigri Sindra 4-0 þar sem Kekic, Atli A og Kristinn Þór (2) skoruðu mörkinn.  Með þessum sigri er Sindri í öðru sæti A riðils með 8 stig eftir fjóra leiki og lítur liðið mjög vel út, gott spil með þétta vörn.

4. flokkur kvenna skrapp til Reykjavíkur og spiluð við ÍR og unnu 7-5 og hefði sigurinn getað orðið töluvert stærri ef heilladísirnar hefðu verið með stelpunum.
3. flokkur karla fór svo til Vestmannaeyja og spiluðu við gríðar sterkt lið ÍBV og máttu þola 5-0 tap þrátt fyrir að hafa barist mjög vel.
2. flokkur karla fékk Breiðablik/Auknablik í heimsókn og sigraði Sindri í bráðfjörugum leik 3-2 þar sem Hallmar, Eiríkur Snær og Mirza skoruðu

Þá var spiluð heil umferð í 7 manna bolta 2. Flokks kvenna þar sem 2 til heimsóttu okkur en þau voru Neisti/Tindastóll og Fylkir/ÍR og sigruðu stelpurnar okkar bæði liðin  8-0 og 2-1

Næstu leikir eru þessir:
Fimmtudagur 14. Júní  1. Deild kvenna  Vilhjálmsvöllur   Höttur – Sindri
Föstudagur 15 júní 2. Flokkur karla  Sindravellir kl. 20:00 Sindri – Hamar  
Laugardagur 16. Júní 3. Deild karla  Sindravellir kl. 16:00  Sindri – KFS
Laugardagur 16. Júní 3. Flokkur karla Sindri – Leiknir/KB
Og svo keppir 3. Flokkur kvenna á Fellavelli við Hött og Einherja þennan sama laugardag.  Semsagt nóg af verkefnum næstu viku.


 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) Grásleppuveiðar Í nýju sundlauginni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica