Varð um helgina sjöfaldur Íslandsmeistari
Sveinbjörg Zophoníasdóttir sem keppir fyrir FH varð um helgina sjöfaldur Íslandsmeistari í flokki 20-22 ára í frjálsíþróttum á Meistaramóti Íslands fyrir 15-22 ára sem fór fram hér á Höfn.
Sveinbjörg, sem varð Norðurlandameistari í langstökki í þessum aldursflokki í síðasta mánuði, náði fyrr í sumar næstbesta árangri íslenskrar konu í sjöþraut. Á mótinu um helgina vann hún 100 m grindahlaup á 15,54 sekúndum, spjótkast með 34,47 metrum, 200 m hlaup á 26,15 sekúndum, kúluvarp með 12,13 metrum, langstökk með 5,99 metrum, 100 m hlaup á 12,62 sekúndum, ásamt því að vera í sigursveit FH í boðhlaupi.
Alls tóku 13 lið þátt í mótinu. ÍR vann stigakeppni mótsins og fékk 574,5 stig. Breiðablik varð í öðru sæti með 305 stig og FH endaði í þriðja sæti með 258 stig.


