Fundargerð félagsmálaráðs 135
135. fundur
Fundur haldinn í félagsmálaráði Hornafjarðar í ráðhúsi þriðjudaginn 8. nóv. 2005, kl 16.10.
Mætt voru: Sigurbjörg Karlsdóttir, Margrét Jóhannesdóttir, Þorbjörg Helgadóttir, Guðrún Jónsdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson og Birgir Þ. Kjartansson félagsmálastjóri.
1. Einstaklingsmál, fært í trúnaðarbók.
2. Önnur mál.
a) Félagsmálastjóri kynnti nýjar reglur frá félagsmálaráðuneytinu um daggæslu barna í heimahúsum, nr. 907 5. október 2005.
b) Málefni: Aðgerðaráætlun til að vinna á kynbundnu ofbeldi. Bæjarráð Hornafjarðar tók fyrir á fundi sínum þann 27. október s.l. erindi frá Sambandi isl. Sveitarfélaga til afgreiðslu og vísaði því til félagsmálaráðs. Félagsmálastjóri dreifði göngum um málið og verður það tekið fyrir á næsta fundi ráðsins.
c) Félagsmálastjóri lagði fram til kynningar verkefnið Blátt áfram- forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum á Íslandi, ásamt leiðarvísi um stefnumótun og framkvæmdaráætlun fyrir stofnanir sem vinna með börnum og unglingum.
Félagsmálaráð samþykkir að taka þátt í kostnaði vegna þessa verkefnis.
Fundi slitið kl. 17:00


