Fundargerð félagsmálráðs 137
137. fundur
Fundur haldinn í félagsmálaráði Hornafjarðar í ráðhúsi þriðjudaginn 13. des. 2005,
kl 16.10.
Mætt voru: Sigurbjörg Karlsdóttir, Margret Jóhannesdóttir, Þorbjörg Helgadóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson og Birgir Þ. Kjartansson félagsmálastjóri.
1. Einstaklingsmál, fært í trúnaðarbók.
2. Önnur mál.
Barnaverndarstofa boðaði til starfsdags þann 2. desember s.l. með félagsmálastjórum og framkvæmdastjórum barnaverndarnefnda af öllu landinu. Félagsmálastjóri tók þátt í starfsdeginum. Mörg áhugaverð erindi voru flutt.
Í hópumræðum var rætt um:
- Helstu vandamál í barnaverndarvinnu
- Samspil pólitískt kjörinna fulltrúa og starfsmanna
- Fjármagn til málaflokksins
- Uppbygging úrræða
- Önnur viðfangsefni
Barnaverndarstofa stefnir að því að árlega verði boðið starfsdags á þeirra vegum.
Fundi slitið kl. 18:00


