Fundargerð félagsmálaráðs 185
185. fundur
Fundargerð félagsmálaráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,
þriðjudaginn 23. september 2008 og hófst hann kl. 16:10
Fundinn sátu:
Margrét Jóhannesdóttir, Björg Svavarsdóttir, Þorbjörg Helgadóttir, Elísabet Einarsdóttir, Jón Kristján Rögnvaldsson,
Fundargerð ritaði: Jón Kristján Rögnvaldsson, félagsmálastjóri
Dagskrá:
1. 200808032 - Barnaverndarmál
Fært í trúnaðarmálabók.
2. 200808051 - Ósk um samstarf
Nú liggur fyrir að Stígamót munu senda fulltrúa sinn til Hornafjarðar í október og munu heimsóknir verða að jafnaði á tveggja vikna fresti. Nánar auglýst síðar í samvinnu við Stígamót.
3. 200709065 - Fjölskyldustefna Hornafjarðar
Starfsmanni félagsmálaráðs falið að vinna úr framkomnum tillögum og koma þeim áleiðis til stýrihóps fjölskyldustefnunnar. Áhersla lögð á afþreyingu og tómstundir unglinga og endurskoðun á niðurgreiðslum til dagforeldra.
4. 200809012 - Stefnumótun í málefnum innflytjenda - umsögn
Félagsmálaráði kynntar tillögur sambandsins og engar athugasemndir eru gerðar af hálfu ráðsins.
5. 200808043 - Reglur um sí-og endurmenntun
Félagsmálaráð gerir athugasemd við VII. grein reglnanna. Athugasemdin snýr að því að þeir sem nú þegar eru byrjaðir í námi skuli sitja við óbreytt borð. Félagsmálaráð telur að þeir sem eru nú þegar í námi eigi að gera samning við sinn vinnuveitenda jafnt og þeir sem eru nú að hefja nám. Þannig myndi grein IV. gilda fyrir alla starfsmenn sveitarfélagsins sem væru í námi og að hefja nám.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:35


