Fundargerð félagsmálaráðs 209
209. fundur
Fundur í félagsmálaráði Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, þriðjudaginn 28. september 2010 og hófst hann kl. 16:10
Fundinn sátu:
Snæfríður H. Svavarsd., Anna María Ríkharðsdóttir, Ásdís Ólafsdóttir, Grétar Már Þorkelsson, Jón Kristján Rögnvaldsson,
Fundargerð ritaði: Jón Kristján Rögnvaldsson, félagsmálastjóri
Dagskrá:
1. 201008054 - Neyðarvistun skv. 84.gr. barnaverndarlaga
Lögð fram drög að samningseyðublaði vegna neyðarvistunar skv. 84. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Samþykkt að áorðnum breytingum.
2. 201008046 - Staða húsnæðismála á Hornafirði
Eftirfarandi var bókað og vísað til félagsmálaráðs á 513. fundi bæjarráðs 13. sept. s.l. undir lið 3 í fundargerð:
„Lögð fram drög að greinargerð um húsnæðismál. Rætt um gjaldskrá leigu á Hornafirði, ástand húsa, húsnæðismál í dreifbýli og hlutverki sveitarfélagsins á fasteigna- og leigumarkaði. Vísað til félagsmálaráðs til umræðu. Bent á að á fyrra kjörtímabili hafi verið unnin skýrsla á vegum sérstakrar húsnæðisnefndar sem þarf að hafa til hliðsjónar í þessum málum.“
Félagsmálaráð fagnar greinargerðinni og telur hana mikilvægt gagn í umræðuna um húsnæðismál í sveitarfélaginu. Ráðið mun í framhaldinu fara í frekari vinnu við gerð úthlutunarreglna á félagslegum forsendum. Félagsmálaráð telur ennfremur að sala íbúða sveitarfélagsins hafi gengið vel á þeim hraða sem hefur verið og stendur ekki í vegi fyrir frekari sölu íbúða.
3. 201009076 - Fjárhagsaðstoð
Fært í trúnaðarmálabók.
4. 201005026 - Fjárhagsaðstoð
Fært í trúnaðarmálabók.


