Fundargerð Hafnarstjórnar 57
57. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 18. maí 2004, kl. 20:00.
Mætt voru: Ari Jónsson formaður, Ásgeir Gunnarsson, Friðþór Harðarson og Halldór Tjörvi Einarsson. Sömuleiðis starfsmenn Albert Eymundsson og Sigfús Harðarsson
1. Tilboð í þil á Krosseyjarbakka
Búið er að fara yfir tilboðin sem bárust og niðurstaðan er eftirfarandi:
1. Ísar ehf. 30.952.000 (64,0%)
2. Guðlaugur Einarsson ehf 41.550.000 (85,9%)
3. Elin ehf 42.238.490 (87,3%)
4. Rósaberg ehf 48.468.265 (100,2%)
5. Sveinn Sighvatsson 66.464.680 (137,4%)
Tilboðin voru öll rétt út reiknuð og engar breytingar frá niðurstöðutölum sem lesnar voru á opnunarfundi.
Hafnarstjóri gerði grein fyrir málinu og sagði að starfsmenn Siglingastofnunar mæltu með að rætt verði við lægstbjóðanda, Ísar ehf.
Ari lagði mikla áherslu á að vandað verði til samningsgerðarinnar og að tímaáætlanir stæðust. Við undirskrift samnings liggi fyrir verkáætlun og greinagóðar upplýsingar um efnahag bjóðendans og verktryggingar.
Hafnarstjórn samþykkir að fela Siglingastofnun að ganga til samninga við lægstbjóðenda.
2. Önnur mál
Hafnarstjóri gerði grein fyrir ósk um breytingar á viktargjaldi vegna flutninga frá Skinney-Þinganesi og út í bræðslu. Samþykkt að endurskoða reikninginn.
Ari gerði grein fyrir samtali hans við fulltrúa Ísfells ehf. og sömuleiðis skýrði hafnarstjóri frá viðtölum við sömu aðila um aðstöðu vegna netagerðarverkstæðis. Fram kom bréf sem borist hafði til Sigfúsar um sama málefni. Því er beint til Siglingastofnunar að hraða frumáætlun á möguleikum hvað varðar aðstöðu fyrir nýtt netaverkstæði.
Fundi slitið 21:10
Ari Jónsson
Friðþór Harðarson
Ásgeir Gunnarsson
Halldór Tjörvi Einarsson
Albert Eymundsson
Sigfús Harðarsson


