Hafnarstjórn
fundargerð Hafnarstjórnar
35. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss miðvikudaginn 4. mars, kl. 20:05.
Mætt voru: Ari Jónsson formaður, Hermann Stefánsson, Elvar Unnsteinsson, Kristinn Guðmundsson, Björn E Traustason, Reynir Arnarson, Sigfús Harðarson og Helgi Már Pálsson starfsmenn. Gestur fundarins var Gísli Sverrir Árnasson.
Ari Jónsson setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Hafnarvík – Heppa
Gísli Sverrir forstöðumaður Menningarmiðstöðvar kynnti skýrslu sem unnin hefur verið á vegum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og ber nafnið Hafnarvík - Heppa, mannlíf og minjar og fjallar um hugmynd að endurreisn gamla hafnarsvæðisins.
Rætt var um kostnað og fjármögnun vegna framkvæmdarinnar og kom fram að hafnarsjóður gæti ekki stutt hana fjárhagslega auk þess sem bent var á umrætt svæði væri ekki lengur á skilgreindu hafnarsvæði.
Ákveðið var að hafnarstjórn kæmi að fyrirhuguðum kynningar- og umræðufundi þ. 7. mars n.k.
Gísli Sverrir vék af fundi.
2. Fundargerðir
Fundargerð síðasta fundar hafnarstjórna,r 11. febrúar 2002.
Engar athugasemdir.
Fundargerð 251. fundar Hafnasambands Sveitarfélaga, 8. febrúar 2002
Til kynningar.
3. Umræður um frumvarp til hafnalaga, 386. mál heildarlög – gögn áður send
Dreift var umsögn Hafnarsambands sveitarfélaga um frumvarp til nýrra hafnarlaga og kynnti Ari þau lauslega.
Nefndarmenn lýstu ánægju með umsögn Hafnarsambandsins .
4. Önnur mál
· Hermann spurðist fyrir um breytingar á dýpi á Grynnslunum. Ekki hefur reynst unnt að gera neinar mælingar á þessu ári.
· Rætt var um staðsetningu á nýja löndunarkrananum.
· Rætt var um viðlegurými í höfninni á annatímum. Hafnarstjórn telur þörf á að hafist verði handa á forathugun á nýju og dýpra viðlegurými.
· Ari kynnti breytingar á fyrirhuguðum fundi Hafnarsambands sveitarfélaga sem átti að vera 8. mars n.k.
Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum
fundi slitið kl.21:40
Ari Jónsson
Elvar Unnsteinsson Helgi Már Pálsson
Hermann Stefánsson Sigfús Harðarson
Reynir Arnarson
Kristinn Guðmundsson
Björn E Traustason


