Fundargerð hafnarstjórnar 78
78. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss miðvikudaginn 3. maí 2006, kl. 20:00.
Mætt voru: Páll Guðmundsson formaður, Ásgeir Gunnarsson, Reynir Arnarson, Björn Emil Traustason og Halldór Tjörvi. Sömuleiðis starfsmenn, Albert Eymundsson og Sigfús Harðarson.
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir.
2. Aðstaða á Austurfjörum
Hafnarstjóri greindi frá fundi með starfsmönnum Siglingastofnunar og fulltrúa LitlaHorns 2. maí þar sem gerð voru fyrirliggjandi drög að samningi milli Hornafjarðarhafnar og LitlaHorns um aðstöðu á Austurfjörum til að skipa út steinefnum á vegum LitlaHorns. Hafnarstjórn samþykkir samninginn fyrir sitt leyti með fyrirvara um að lögfræðingar aðila geri ekki athugasemdir við hann og vísar honum til afgreiðslu í bæjarráði.
3. Tilboð í dýpkun innan hafnar
Hafnarstjóri upplýsti að Siglingastofnun vildi ganga til samninga við Gáma- og tækjaleigu Austurlands ehf. Jafnframt kom fram að þeir munu ekki hefja dælingu fyrr en síðla sumars. Vegna efasemda um að Gáma- og tækjaleigan hafi búnað til að framkvæma nema hluta af verkinu setur hafnarstjórn það sem skilyrði að fyrirtækið komi sem allra fyrst til Hornafjarðar og sýni fram á það geti unnið verkið og dæli í það minnsta 5000 rm á því svæði sem mest er aðkallandi. Hafnarstjórn vill að í samningum við Gáma- og tækjaleiguna verði fyrirvari um að höfnin sjálf geti dýpkað hluta af verkinu með sínum tækjum standi fyrirtækið ekki við tímasetningar og gerða samninga.
4. Samgönguáætlun 2007 – 2010
Hafnarstjóri lagði til að inn á samgönguáætlun 2007 – 2010 kæmi tillaga frá Hornafjarðarhöfn um 100 m stálþilsbryggju ( 120 m.kr.) árið 2007 til að umskipa vörum. Staðsetning bryggjunar verður ákveðin í frekari skipulagsvinnu á hafnarsvæðinu. Sömuleiðis að dæling á Grynnslum verði áfram inn á áætlun öll árin meðan endanleg niðurstaða liggur ekki fyrir um árangur dýpkunarinnar sl. haust.
5. Önnur mál
Umræða varð um breytingar á leiðarmerkjum um Hornafjarðarós.
Fundi slitið kl. 22:00


