Fundargerð hafnarstjórnar 89
89. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss mánudaginn 26. febrúar kl. 20:00.
Mætt voru: Reynir Arnarson formaður, Halldór Tjörvi Einarsson, Guðrún Ingimundardóttir, Ágeir Gunnarsson og Páll Guðmundsson. Einnig: Hjalti Þór Vignisson og Sigfús Harðarson.
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir.
2. Vigtarmál
Lagt fram minnisblað vegna fundar fulltrúa Hafnarsambands Íslands með Einari Kristni Guðfinnssyni, sjávarútvegsráðherra, þriðjudaginn 11. apríl 2006. Til kynningar.
Lagt fram minnisblað varðandi fund fulltrúa Hafnasambands Íslands, Einars K. Guðfinnssonar, sjávarútvegsráðherra og Þórðar Ásgeirssonar Fiskistofustjóra varðandi vigtarmál þann 21. febrúar 2007. Hafnarstjórn tekur heilshugar undir áherslur Hafnasambands Íslands í málinu.
3. Bryggjuframkvæmdir
Lagt fram minnisblað frá Siglingastofnun þann 9. febrúar 2007 varðandi nýja bryggju og endurbyggingu Álaugareyjarbryggju. Í minnisblaðinu er velt upp tveimur kostum. Annars vegar að endurbyggja Álaugareyjarbryggju auk 80 metra lengingar og hins vegar byggingu 100 metrar bryggju milli Krosseyjarbakka og Álaugareyjarbryggju.
Hafnarstjórn er sammála um að stefna beri að endurbyggingu Álaugareyjarbryggju og lengja hana um 80 metra þannig að bryggja verði a.m.k. 153 metrar. Ennfremur leggur Hafnarstjórn til að Vogarbryggja verði endurbyggð í samræmi við útreikninga Siglingastofnunar. Í minnisblaði Siglingastofnunar er gert ráð fyrir það heildarframkvæmdakostnaður verði 198 m.kr.
Miklar umræður sköpuðust um áfangaskiptingu framkvæmdar og útfærslur á göflum bryggjunnar. Hafnarstjóra falið að ræða við Siglingastofnun um þessi atriði.
4. Athugasemdir vegna framkvæmdar á dælingu
Gerð grein fyrir athugasemdum sem borist hafa frá einum tilboðsgjafa dælingar. Athugasemdirnar eru í tíu liðum. Hafnarstjórn er sammála um að standa við fyrri samþykkt sína um að ganga til samninga við Gáma- og tækjaleiguna að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Hafnarstjóra falið að bera framkomnar athugasemdir undir lögfræðing.
5. Önnur mál
· Spurt um mönnunarmál á höfninni og hvort hægt sé að auka verkefni hafnarstarfsmanna í ljósi þess að hafnarstarfsmenn sjá ekki lengur um dælingu. Kom fram að rætt hafi verið um samrekstur hafnarinnar og áhaldahússins. Hafnarstjórn hvetur til þess að þessi hugmynd verði skoðuð nánar.
· Rætt um þörf á straummælingum í höfninni. Hafnarstjórn sammála að óska eftir við Siglingastofnun að mælingar fari fram.
· Kom fram að lagfæringar á Óslandsbryggjum séu langt komnar.
Fundi slitið kl. 21.45


