Fundargerð hafnarstjórnar 94
94. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í Ráðhúsi þriðjudaginn 26. júní 2007 kl. 12:00.
Mættir voru: Reynir Arnarson, formaður, Ásgeir Gunnarsson, Halldór Tjörvi Einarsson og Páll Guðmundsson. Einnig: Hjalti Þór Vignisson og Sigfús Harðarson.
1. Dæling.
Kom fram að Gáma- og tækjaleigan hafi sagt sig frá dælingu í Hornafjarðarhöfn. Mikil umræða skapaðist um dælingu. Formanni Hafnarstjórnar og hafnarstjóra falið að ganga til viðræðna við Vélsmiðjuna Foss ehf. / Rósaberg ehf. um dælingu í Hornafjarðarhöfn.
2. Önnur mál
Reynir gerði grein fyrir viðræðum sínum við starfsmenn Siglingastofnunar um hönnun á Álaugareyjarbryggju. Kom fram að stefnt er að útboði á Álaugareyjarbryggju haustið 2007 og framkvæmdir hefjist í mars 2008. Þá gerði Reynir grein fyrir viðræðum sínum við Siglingastofnun um samstarf Hornafjarðarhafnar og Siglingastofnunar um þjónustu Hornafjarðarhafnar við Siglingastofnun. Reynir taldi að góður grundvöllur væri fyrir áframhaldandi samstarfi. Stefnt er að fundi með starfsmönnum Siglingastofnunar og Hafnarstjórn í ágúst.
Fundi slitið kl. 13.40


