Fundargerð hafnarstjórnar 107
107. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsi,þriðjudaginn 25. nóvember 2008 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Ásgeir Gunnarsson, Halldór Tjörvi Einarsson, Árni Rúnar Þorvaldsson, Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Valdemar Einarsson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 200810010 - Fjárhagsáætlun 2009
Rætt um forsendur fjárhagsáætlunar og stöðu hafnarsjóðs 31. október 2008. Kom fram að reksturinn skilar afgangi upp á 19 miljónir fyrstu 10 mánuði ársins.
Rætt um gjaldskrá og hvort ætti að hækka hana skv. vísitölu. Vegna góðrar stöðu hafnarinnar var rætt um aflagjald. Í því ljósi spannst upp umræðu um hvort ríkið myndi standa við þær fyrirætlanir að koma ekki lengur að hafnarframkvæmdum.
Hafnarstjórn óskar eftir að áætlun verði sett upp til þriggja ára þar sem gerð er áætlun um tekjur og gjöld, þörf á framkvæmdum og viðhaldi út frá núverandi gjaldskrá. Starfsmönnum falið að gera lista yfir nauðsynlegar framkvæmdir á næstu árum. Í kjölfarið mun hafnarstjórn ræða um hvort forsendur eru fyrir því að breyta gjaldskrá hafnarinnar.
2. 200705098 - Framkvæmdir
Rætt um stöðuna á Álaugareyjarbryggju. Valdemar ræddi þá hugmynd að færa kranann í Óslandi á nýju Álaugareyjarbryggjuna. Rætt um ástand vigtarpallsins og staðsetningu vigtarhúss. Rætt um að Hagtak er að koma að grafa í höfninni. Sammála um að prófa að grafa við Bátstanga.
3. 200705114 - Önnur mál
Valdemar spurði um merkingar á bryggjunni. Birgir upplýsti að unnið er að málinu. Hafnarstjórn óskar eftir að unnið verði kort af hafnarsvæðinu þar sem fram koma lóðamörk, bryggjur og götur.
Spurt um björgunarlaun fyrir Axel. Reynir upplýsti að hann hafi átt samtal við lögfræðing sveitarfélagsins um þessi mál og þar kom fram að málið væri á hreyfingu.
Birgir ræddi um sameiningu stofnana og hvernig gengi að auka samvinnu á milli áhaldahúss og hafnarinnar. Upplýsti hann að eftirlitskerfi með vatnsveitunni hafi verið komið upp á Hafnarvoginni og að starfsmaður í áhaldahúsi hafi farið í dráttartúr á lóðsinum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl.


