Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 122
122. fundur
Fundur í hafnarstjórn Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,miðvikudaginn 10. mars 2010 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, Sigurður Ægir Birgisson, Árni Rúnar Þorvaldsson, Hjalti Þór Vignisson, Valdemar Einarsson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 201003058 - Sala á löndunarkrana
Hjalti gerði grein fyrir samskiptum við sveitarstjórann á Breiðdalsvík um möguleg kaup á krana sem stendur við Óslandsbryggju. Umræður sköpuðust um not af krananum í nútíð og framtíð. Kom m.a. fram það sjónarmið að ef strandveiðar eru komnar til að vera að þá gæti verið aukin þörf fyrir kranann. Kostnaður við að kaupa nýjan krana í dag er áætlaður um 6 miljónir króna. Niðurstaða Hafnarstjórnar er því að ekki er skynsamlegt að höfnin selji kranann frá sér vegna þeirra nota sem hugsanlega skapast fyrir hann á allra næstu árum. Hafnarstjóra veitt umboð til að ræða um leigu á krananum í sumar.
2. 201003059 - Laun til hafnsögumanna vegna björgunar á Axel
Lagt fram bréf frá Lögmönnum, dags. 23. febrúar, fyrir hönd starfsmanna hafnarinnar um athugasemdir um laun fyrir björgun á Axel. Hafnarstjórn sammála um að taka málið upp þegar lögfræðiálit hefur borist frá Regula.
3. 200705114 - Önnur mál
Lögð fram drög að ársuppgjöri fyrir Hornafjarðarhöfn, dags. 10. mars 2010.
Spurt um framkvæmdir við garð á milli Ískaja og Álaugareyjar.
Spurt um framkvæmdir við Hafnarvog.


