Fundargerð hafnarstjórnar 113
113. fundur
Fundur í hafnarstjórna Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, miðvikudaginn 25. mars 2009 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Halldór Tjörvi Einarsson, Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Valdemar Einarsson, Birgir Árnason, Sigfús Harðarson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 200705098 - Álaugareyjarbryggja
Farið yfir teikningar af þekju á Álaugareyjarbryggju. Lagt til að ekki verði byggt hús fyrir rafmagn og rafmagnsskápur færður þar sem húsið átti að rísa. Mikilvægt er að hafa teikningu af fyrirhuguðum rampi við vöruafgreiðslu á Álaugarey á heildarmyndinni. Þá þarf að hafa samráð við Olíudreifingu um hvar eigi að staðsetja olíulögn. Þá er mikilvægt að teikna upp lokafrágang á svæðinu og kanna kostnað við hann, s.s. steypa þekju austan á Álaugarey og ganga frá svæðinu á milli nýrrar bryggju og Ískaja. Tryggja verður greiðan aðgang og góða akstursleið á milli frystiklefa og nýrrar bryggju. Þá telur hafnarstjórn óþarft að setja upp nýtt vatnsúttak heldur eigi að nota það sem fyrir er.
2. 200804073 - Dýpkun í Hornafjarðarhöfn
Gerð grein fyrir viðræðum við Siglingastofnun um málið. Haukur gerði grein fyrir hugmyndum um að dæla 45.000 rúmmetrum á Leirusvæðið. Ákveðið að leita eftir fundi með íbúum á Leirusvæði, Fiskhól , rekstraraðilum tjaldstæðis og íbúum í Hlíðartúni þar sem hús snúa að Hafnarbraut. Fundurinn með íbúum verði haldinn 1. apríl og hafnarstjórn hittist í kjölfarið 2. apríl.
Reynir upplýsti um samtöl sín við lögfræðing sveitarfélagsins um málefni flutningaskipsins Axel.
Haukur gerði grein fyrir hugmyndum Gísla Viggóssonar um nýjan ós úti fyrir Hornafirði.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15.00


