Fundargerð hafnarstjórnar 138
138. fundur
138. fundur hafnarstjórnar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, 9. nóvember 2011 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Sigurður Ægir Birgisson varaformaður
Nína Sibyl Birgisdóttir aðalmaður
Valdemar Einarsson aðalmaður
Páll Ólafsson aðalmaður
Haukur Ingi Einarsson (HIE) starfsmaður tæknisviðs
Birgir Árnason starfsmaður tæknisviðs
Sigfús Harðarson embættismaðu
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.
Dagskrá:
| 1. |
201111021 - Björgun Ölmu |
|
|
Reynir fylgdi málinu úr hlaði, gerði hann grein málavöxtum og þeim samskiptum sem hafnarstjóri hefur átt við lögfræðing um málið. Hafnarstjórn tekur undir þau sjónarmið sem fram komu í máli Reynis um að starfsmenn Hornafjarðarhafnar hafi gegnt lykilhlutverki í björgun M/S Ölmu. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu með hagsmuni hafnarinnar og starfsmanna að leiðarljósi. |
| |
|
|
| 2. |
201109021 - Fjárhagsáætlun 2012 |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir fjárhagsáætlun Hafnarinnar og Veitnanna. Gert er ráð fyrir framkvæmdum upp á 35 m.kr í Hafnarsjóði fyrir árið 2012 þar sem viðhald Miklagarðsbryggju, Loðnubryggju og hafnarvogar eru stærstu einstöku liðirnir. Rekstrarniðurstaða hafnarsjóðs er áætlað 49 m.kr. fyrir árið 2012. Farið var yfir þriggja ára áætlun Hafnarsjóðs. Valdemar spurðist fyrir um viðgerð á Melatangabryggju og hvort viðgerð á bryggjunni væri inni í framkvæmdaráætlun fyrir Hafnarsjóð. Upplýst var að svo er ekki. Gert er ráð fyrir framkvæmdum upp á 20 m.kr í veituframkvæmdir fyrir árið 2012 þar sem endurnýjun á fráveitu við tjaldstæði og í Nesjahverfi eru stærstu einstöku liðirnir. Einnig er fyrirhugað að kostnaðarmeta áætlun um uppbyggingu á endabúnaði við fráveitu sem miðar að því að uppfylla reglur um hreinsun á skólpi og skilgreina viðtaka. Rekstrarniðurstaða Veitna er áætluð 829 þ.kr fyrir árið 2012. Farið var yfir þriggja ára áætlun veitna. Starfsmönnum falið að fara yfir skuld veitna við eignasjóð. Hafnarstjórn samþykkir framlagðar fjárhagsáætlanir fyrir hafnarsjóð og veitur. |
| |
|
|
| 3. |
201105057 - Innleiðing á tilskipun 2005/65/EB hjá Hornafjarðarhöfn(vernd skipa og hafnaraðstöðu) |
|
|
Reynir gerði grein fyrir málinu, búið er að senda skýrsluna til Siglingastofnunnar. |
| |
|
|
| 4. |
201107024 - Sjóvarnarskýrsla |
|
|
Starfsmenn kynntu málið. Fram kom að bæta þarf sjóvarnir við siglingarmerki og vita á Suðurfjörum. Einnig lögð áhersla á að ganga frá sjóvörn í Óslandi. Starfsmönnum falið að koma upplýsingum til Siglingastofnunar. |
| |
|
|
| 5. |
201111011 - Hafnareglugerð |
|
|
Frestað til næsta fundar. |
| |
|
|
| 6. |
201111013 - Hafnarvog |
|
|
Starfsmönnum falið að óska eftir tilboðum í nýjan vigtarpall. |
| |
|
|
| 7. |
201111012 - Viðhald húsa á hafnarsvæði |
|
|
Páll spurði hvaða tryggingar eru á húsum sem hafnarsjóður hefur umsjón með. Hafnarstjórn leggur til umhverfi húsa á hafnarsvæði sem sveitarfélagið á verði haldið í sem bestu horfi, einnig lagt til að steinhúsið við vesturenda Miklagarðs ( Graðaloftið ) verði málað fyrir sumarið 2012. |
| |
|
|
| 8. |
201111016 - Miklagarðsbryggja |
|
|
Hafnarstjórn felur starfsmönnum að koma með tillögur að því hvernig best er að tryggja líftíma núverandi stálþils við Miklagarðsbryggju, tillögurnar skulu vera kostnaðarmetnar. Hafnarstjórn leggur til að kannað verði hvað það er sem veldur styttri endingu á stálþili en eðlilegt getur talist. Haft verði samstarf við Siglingastofnun og Vestmanneyjarhöfn um málið. |
| |
|
|
| 9. |
201111020 - Dælulög milli Krossey/fiskimjölsverksmiðju |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir fundi með forsvarsmönnum Skinneyjar-Þinganess þar sem óskað er eftir umsögn um hugmynd þeirra um að leggja dælulögn á milli Krosseyjar og fiskimjölsverksmiðju. Markmið með framkvæmdinni er m.a að draga úr akstri á hafnarsvæði og tryggja rekstrarhagræði. Hafnarstjórn tekur jákvætt í hugmyndina og óskar eftir nánari útfærslum. Starfsmönnum falið að skoða framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdinni. |
| |
|
|
| 10. |
201102011 - Önnur mál |
|
|
Reynir gerði grein fyrir því að Hafnarsjóður eigi von á tilboði í krana sem staðsettur er á Breiðdalsvík. Hafnarstjórn er opin fyrir öllum tilboðum í kranann. |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:50