Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 148
148. fundur
148. fundur hafnarstjórnar Hornafjarðar
haldinn í ráðhúsi, 8. október 2012 og hófst hann kl.18:00.
Fundinn sátu:
Sigurður Ægir Birgisson varaformaður
Nína Sibyl Birgisdóttir aðalmaður
Valdemar Einarsson aðalmaður
Páll Ólafsson aðalmaður
Örn Arnarson 3. varamaður
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Birgir Árnason starfsmaður tæknisviðs
Sigfús Harðarson embættismaður
Sigurður Guðmundsson
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
|
201208033 - Strandráðstefna 2013 |
||
|
Hafnarstjórn er sammála um að tveir fulltrúar fari frá Hornafjarðarhöfn, Reynir Arnarson og Vignir Júlíusson. |
||
|
|
||
|
2. |
201112025 - Miklagarðsbryggja - framkvæmdir |
|
|
Gerð grein fyrir prófunum á að endurbæta stálþilið. Einnig sagt frá kynningu á Hafnasambandsþingi frá aðilum sem sérhæfa sig í þess háttar endurbótum. Upplýst að verktakinn sé tilbúinn að koma til Hornfjarðar og kynna þjónustu sína og kanna aðstæður. Hornafjarðarhöfn felur starfsmönnum að leita eftir því við verktakann að koma til Hafnar, skoði aðstæður og kynna möguleikana í framhaldinu. |
||
|
|
||
|
3. |
201106046 - Framkvæmdir og viðhald við höfnina |
|
|
Farið yfir hugmyndir um framkvæmdir og viðhald við höfnina. Upplýst að höfnin eigi ennþá fé til framkvæmda á þessu ári. Rætt um heftingu foks á Leirusvæði. Gerð grein fyrir hugmyndum um að koma upp skrifstofuaðstöðu fyrir hafnarstarfsmenn í Áhaldahúsi. Hafnarstjórn samþykkir að endurbætur verði gerðar á Áhaldahúsi til að koma upp skrifstofuaðstöðu fyrir forstöðumann. Starfsmönnum falið að undirbúa framkvæmdir við grjótvörn á Suðurfjöru. |
||
|
|
||
|
4. |
201207007 - Fjárhagsáætlun 2013-2016 |
|
|
Sigurður fór yfir helstu áherslur í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar. Hafnarstjórn tekur fjárhagsáætlun fyrir á næsta fundi sínum í nóvember. |
||
|
|
||
|
5. |
201210006 - Losunarsvæði vegna uppdælingar úr höfninni |
|
|
Ægir lagði áherslu á að þessi mál yrðu kláruð fljótt og vel. Hjalti gerði grein fyrir umræðu um málið á fundi bæjarráðs um að leggja lögn yfir Suðurfjörur og losa efni þar. Starfsmönnum falið að vinna að málinu, gera kostnaðaráætlun um að leggja lagnir að Stapakletti og leggja fyrir hafnarstjórn sem allra fyrst. |
||
|
|
||
|
6. |
201004030 - Fráveituútrás við Leiðarhöfða |
|
|
Lagðar fram upplýsingar um niðurstöðu mælinga fyrir og eftir að hreinsivirki var sett upp við Leiðarhöfða. Árangur er jákvæður. |
||
|
|
||
|
7. |
201208018 - Önnur mál |
|
|
Nína spurði um heimasíðu fyrir höfnina. Valdemar spurði um myndavélar sem smábátafélagið gaf. Sigurður upplýsti að þær myndvélar væru ónýtar. Verið sé að vinna að taka aðrar myndavélar í notkun. |
||
|
|
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl.19:15


