Fundargerð Hafnarstjórnar 50
50. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss mánudaginn 1. desember, kl. 20:00.
Mætt voru: Ari Jónsson formaður, Reynir Arnarson, Halldór Tjörvi Einarsson, Ásgeir Gunnarsson, Albert Eymundsson, Sigfús Harðarson, Vignir Júlíusson og Helgi Már Pálsson.
1. Fundargerðir
• Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 49. fundur 6. október 2003.
Fundargerð samþykkt
2. Fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafnar 2004
Albert fór yfir drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2004. Gert er ráð fyrir 45.400 þkr í rekstrartekjur og 28.820 þkr í rekstrargjöld. Frá rekstri til framkvæmda eru því 16.580 þkr. og afborganir á langtímalánum eru 1.150 þkr . Í langtímaskuldum er gert ráð fyrir 60.000 þkr nýrri lántöku fyrir framkvæmdum ársins 2004 og uppgjöri hafnarsjóðs við bæjarsjóð.
Samþykkt að vísa fjárhagsáætlun til 1. umræðu í bæjarstjórn.
3. Ósk um endurvigtunarleyfi
• Bréf Fiskistofu 19. nóvember vegna Fiskverks ehf.
Óskað er eftir áliti Hornafjarðarhafnar vegna endurvigtunarleyfi fyrir Fiskverk ehf, skv. bréfi dags. 19. nóvember s.l.
Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar leggst ekki gegn því að Fiskverk ehf verði veitt endurvigtunarleyfi að því tilskyldu að öllum ákvæðum laga og reglugerðsé fullnægt.
4. Samgönguáætlun 2005-2008
• Bréf Siglingastofnunar 9. október 2003.
Albert fór yfir samgönguáætlun 2003 - 2006 og ræddar voru aðrar hugsanlegar framkvæmdir á árunum 2007 - 2008. Samþykkt að taka erindið fyrir aftur á næsta fundi til afgreiðslu.
5. Hafnavernd
• Bréf Siglingastofnunar 9. október 2003.
• Bréf Hafnasambands sveitarfélaga dags. 24. október 2003.
• Bréf Deloitte dags. 23. okóber 2003.
• Bréf Rafhönnunar ódagsett.
Albert kynnti hvernig fyrirhugað er að vinna áætlun fyrir hafnarvernd fyrir Hornafjarðarhöfn og Sigfús og Vignir sögðu frá námskeiði sem þeir sóttu á vegum Siglingastofnunar í síðasta mánuði um gerð þessara áætlana. Samþykkt var að starfsmenn hafnarinnar vinni þessa áætlun og haldinn verði fundur með hlutaðeigandi ásamt Ólafi Briem frá Fjarhitun sem unnið hefur að þessum málum.
6. Önnur mál
• Helgi Már kynnti tvö tilboð í upptökubraut við smábátahöfn. Kostnaðaráætlun var kr. 1.170.900,- og lægra tilboðið, sem er frá Rósaberg ehf , er kr. 1.369.980,- en það hærra er kr. 2.405.620,- og er frá Jarðverk ehf. Samþykkt var að ganga að tilboði Rósabergs ehf. Hafnarstjóra falið að reyna á það hvort verkefnið gæti fallið inná samgönguáætlun næsta árs.
• Ásgeir spurðist fyrir um framkvæmdir á Grynnslunum.
Fundi slitið 22:55
Albert Eymundsson
Helgi Már Pálsson
Sigfús Harðarson
Vignir Júlíusson
Ari Jónsson
Halldór Tjörvi Einarsson
Reynir Arnarson
Ásgeir Gunnarsson


